Færsluflokkur: Bloggar
3.1.2009 | 13:57
Gleðilegt ár!
Gleðilegt ár elskurnar og þakka ykkur jákvæð og yndisleg samskipti á liðnu ári Þið bloggvinir mínir eruð mér svo dýrmæt.
Lífsins tré hefur heilar og brotnar greinar og jafnvel þó það rifni að hluta upp með rótum, heldur það áfram að vaxa og vex alltaf upp í átt að birtunni.
Það reynir á að vera til og það er ekkert verra að þurfa að hafa fyrir hlutunum. Lífið verður örugglega erfiðara á næstu misserum, áður en það verður betra aftur.
En er einhver sem sér eftir þeim tíma sem var? Er betra að lifa í ímyndun um velgengni? Nei, nú förum við að lifa raunverulegu lífi og gerum það líf bara nákvæmlega eins og við viljum hafa það. Meiri jöfnuð og betra mannlíf.
Nú reynir á að þora að ganga traustum, öruggum, ákveðnum en friðsömum skrefum inn í nýtt tímabil sögu okkar. Horfa áfram en ekki aftur á bak. Horfa til þeirrar framtíðar sem við viljum sjá og stefna þangað.
Njóta þess sem við höfum og byggja upp á þann hátt sem við VILJUM hafa uppbygginguna.
Göngum áfram fyllt von og leyfum Ljósinu að leiða okkur rétta leið að betra lífi.
Ljósið er alltaf til staðar, við þurfum "bara" stundum að kyrra okkur til að sjá það.
Vonin leiðir okkur þangað sem við viljum fara svo það er betra að vona í jákvæða átt, ekki satt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
29.12.2008 | 13:54
Jólagleði og gaman
Jæja, þá er smá pása á fjölskylduogmatarpartýunum Svo höldum við áfram á Gamlárs og Nýárs Æ en þetta er svo yndislegur tími. Fjölskyldurnar hittast og spjalla, borða, spila og gleðjast saman. Alveg hreint dásamlegt!
Að fá að upplifa jólin með öllum sínum undrum og stórmerkjum í gegnum tveggja ára gleðikút er náttúrulega algjör forréttindi Embla Sól hjálpaði Lalla afa og Ástráði frænda, ásamt fleiri hjálpar-"höndum"... að skreyta jólatréð.
Maður þarf nú að vanda sig vel.
Og svo þarf náttúrulega að gefa knús inn á milli
Og æfa sig að halda á litlu krúttunum
Og kenna þeim jólalögin voða varlega (með súkkulaði langt út á kinn....
Rétt fyrir jólin fengum við góða heimsókn. Hann Guðni bloggvinur minn kom að heimsækja litlu kisuna sína sem hann er búinn að velja sér.
Bangsi litli og Guðni voru eins og sálufélagar þeir ná greinilega vel saman.
Algjört öryggi, úr þessu fangi er sko hægt að skoða heiminn öruggur.
Og sofna öruggur, ég held þeir geti varla beðið eftir að hittast aftur. Bangsi verður tilbúinn að flytja að heiman um miðjan janúar og þá.... loksins geta þeir verið alltaf saman sálufélagarnir
Ég á enn nokkra kettlinga sem ekki er búið að lofa. Þeir verða tilbúnir frá miðjum janúar að flytja á góð heimili (hringið bara í mig eða sendið mail, sjá uppl. undir "höfundur")
Njótum samverustundanna sem okkur eru gefnar. Þær eru svo dýrmætar og gefa okkur öryggi, gleði og frið inn í nýtt líf á nýju ári.
Knús og friður til ykkar allra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.12.2008 | 11:07
Hátíð Ljóssins og Lífsins
Jólin koma og á hvað sem við trúum hljótum við að halda þessa hátíð sem hátíð Ljóssins. Ljósið sem fæddist með Jesú Kristi, ljósið sem fæðist með hækkandi sól og/eða Ljósið sem fæðist innra með okkur þegar við erum tilbúin að taka við því í hjartað
Það er oft talað um jólin sem hátíð fjölskyldunnar og hátíð barnanna. Og það má svo sannarlega taka undir það. Það má ekki gleyma í því samhengi, barninu innra með okkur, það er svo mikilvægt að halda því lifandi fjörugu og forvitnu, glöðu og bjartsýnu
Ég horfði á litlu kisufjölskyldurnar mínar og velti fyrir mér af hverju þær gjóta alltaf á þessum tíma ársins hjá mér. Mér finnst það svo fallegt og táknrænt að hafa fullt hús af nýju lífi mitt í köldum og dimmum vetrinum. Svo mikið líf og ljós
Gott að vera í örygginu hjá mömmu
Systkinin leika saman glöð og kát
Ekki verra að mamma er með áfast leikfang!
Tvist og Bast að hasast með mömmu sín. Bast heitir sko eftir Egypsku kattagyðjunni en þá passaði svo vel að "tvíburi hennar" heiti Tvist...... lógík?
Þetta skott er alveg heillandi leikfang
Það er svo gaman að vera til! knúsiknús
Svo þurfa mömmur að hvíla sig og viðra inn á milli og vera "fullorðins" með öðrum fullorðnum
Við þessi "fullorðnu" sátum lengi úti í snjónum og horfðum á fegurð lífsins og hlustuðum á þögnina...
og bara nutum fegurðar Lífsins
Svo er það alvara jarðlífsins á ný: MATUR!!
Hér myndast oft biðröð upp stigann
Mæðgur, Eddamamma og Elín litla. Ég kalla hana það eftir hinum nýja eiganda sínum sem kemur og heimsækir hana reglulega og fylgist með
Elínarnar tvær. Til hamingju með afmælið Elín Dagný!!
Bast og Elín litla að rannsaka, það er svo margt að uppgötva og finna, skoða og leika með.
Svo eru sumir sem þykjast svo fullorðnir að þeir þurfa ekkert að rannsaka eða leika sér lengur. Herra Albus Dumbledore finnst alveg nóg að heyra í litlu "vitleysingunum" í fjarska og lauma sér svo bara inn í miðju kyrrðarherbergis húsfreyjunnar Hér er allavega alltaf ró og friður.
Ég get nú alveg hvíslað því að ykkur að hann kann alveg að leika sér, fer bara vel með það svona opinberlega...heldur að það sé ekki nógu kúl...
Munum að leika okkur og njóta lífsins. Það koma jól alveg sama hvað, gerum hjörtun okkar tilbúin að taka við Ljósinu og Kærleikanum sem flæðir og gefum það svo áfram
Ljós, Kærleikur og Líf til ykkar allra elskurnar
Gleðilega hátíð Ljóssins!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
16.12.2008 | 13:38
Hugsanir kisu
Það fer eitthvað lítið fyrir bloggskrifum og blogglestri þessa dagana hjá mér eins og mörgum öðrum. En ég mátti til að koma henni Eddu kisumömmu að. Bara af því mér finnst hún svo falleg og svo hefur hún alltaf svo mikið að segja
Ég nappaði þessari mynd frá honum Ragnari syni mínum.
Hún Edda horfir hugsandi inn í framtíðina. Er hún að velta fyrir sér leiðinni sem við fórum hingað og hvað tekur við á nýju ári? Hvert er þetta fólk að fara? Við fjölskyldan, við sem þjóð, við sem fólk og kettir á þessari jörð, líf okkar allra er samofið. Ætlum við að læra og gera betur?
Það er von hún sé hugsandi, hún hefur fætt lítil kettlingabörn og er væntanlega að hugsa um þeirra framtíð líka. Hvað tekur við? Verður lífið ekki örugglega betra með hækkandi sól? Getur þetta mannfólk yfirleitt lært nýjar og betri leiðir? Nýja hugsun...? Það er pæling... en það er líka alltaf von og breytingar byrja þar, í voninni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
8.12.2008 | 15:20
Himnesk fegurð á jörðu :-)
Mikið yndislega getur snjórinn verið fallegur. Ég hef eiginlega verið í sæluvímu hérna yfir fegurðinni frá því ég vaknaði í myrkrinu í morgun, (tek það fram ég þarf ekki að keyra neitt langt í ófærð sko)
Ég skrapp í örgönguferð um leið og birti. Það þarf ekki að leita langt eftir fegurð Náttúrunnar
Hellisgerðið er svo fallegt allan ársins hring og endalaus uppspretta hugmynda fyrir myndir, skrif, leiki eða saumamynstur og svo er íbúar garðsins svo skemmtilegir líka....
Það liggur við að maður þurfi ekki að setja jólatré inn í stofu með þetta útsýni
Yndislegi nágranni minn hún Fríða bíður svo upp á þessa fegurð með dyggri aðstoð Náttúrunnar.
Eftir fimm mínútur illa klædd í snjónum var gott að fara inn aftur og fá sér súkkulaðikaffi og piparkökur með karlinum sínum. Já, maður er lánsamur að búa í hlýju húsi með hlýju fólki og alla þessa fegurð rétt fyrir utan dyrnar
Lífið hreinlega dekrar við mann
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.12.2008 | 13:19
Jólakrúttuknúsur og jólaföndurgleði
Allt í einu yfirtók jólaaðventugleðin hjartað og vetrarkreppuóyndið hvarf. Nú get ég farið að raula jólalög, yfirskreyta heimilið, skrifa jólakort og pæla í jólagjöfunum
Fjölskyldan mín hefur alltaf Jólaföndur- og piparkökubakstursdag á fyrsta sunnudegi í aðventu. Við erum orðin á milli tuttugu og þrjátíu manns á milli tveggja ára og áttræðs.
Afinn að kenna Emblunni sinni handtökin
Listamennirnir niðursokknir í föndrið
Mín sjálf að föndra.
Systir mín og tvö af hennar barnabörnum.
Fullt hús af gleði og sköpunarorku, hamingju og fjölskyldusamheldnistilfinningu. Piparkökur eru bakaðar og föndrað jólaföndur af lífsins jólagleði. Jólatónlist, malt og appelsín, borða saman, baka og mála piparkökur, sauma og líma, spila á píanó, hlátur og grín, hveiti á brosandi andlitum, lím á fingrum og jólagleði í hjarta. Dásamlegt!
Í ár var kramarhús þemað, unnið úr pappír eða taui, límt eða saumað, blúndur eða perlur, jólapappír og límmiðar. Allt eftir getu, smekk og áhuga. Myndin sýnir hluta af afrakstrinum Gleðin og samveran er samt aðalatriðið og þetta er alltaf svoooooooo gaman.
Og þegar heim var komið beið fullt hús af krúttum. Þau stækka og flest búin að opna augun. Þvílík dásemdarkrútt
Alex með sín krútt ca 2 vikna eða rétt rúmlega.
Embla Sól á þessa litlu fjölskyldu því Alex (Hennar hátign Lady Alexandra ;-) er þeirra kisa (maður skyldi nú ekki gleyma því sko...). En bæði Embla Sól og Alex leyfa okkur hinum sko alveg að skoða og knúsast með krúttin þeirra.
Þessi krútthrúga eru börnin hennar Eddu, ca 12 daga gömul. Þessi brúnbröndótti er kominn með eiganda, við köllum litla krúttið núna Elínu eftir nýja eiganda sínum Hún kemur í heimsókn og fylgist með krúttinu sínu vaxa og dafna þangað til hún fær hann afhentan einhvern tíma eftir nýár.
Gleðilega aðventu elskurnar og munið að njóta hverrar stundar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.11.2008 | 12:18
Enn og aftur um krúttin mín :-)
Litlu krúttin okkar færa okkur knús, gleði og sólskin í hjartað
Auðvitað er Emblan mín aðal og yfirkrútt eins og alltaf
Ég sýndi henni prjónagarn um daginn og spurði hana hvernig henni fyndist þessi græni litur. Hún svaraði: "Váááááá band! Amma hetla (hekla)!" og rétti mér hnykilinn ákveðin. Og auðvitað mun hún fá heklaða peysu úr því garni
Og svo eru það öll "litlustu" krúttin á bænum. ("klekkligadnið" eins og Emblan mín segir )
Vala, sem ég hélt að gengi með 8 kettlinga, reyndist með 3 og er í fínum holdum á eftir. Semsagt átvagl Sem betur fer verð ég að segja, ég var komin með smá áhyggjur ef þetta yrðu kannski 20 kettlingar á heimilinu en þeir eru "bara" 12.
Hérna liggur nýjasta fjölskyldan í fæðingarkassanum, við hliðina á hjónarúminu.... Já, heimilið er allt undirlagt og engar ýkjur þar sko.
Þetta eru litlu Völubörn ca tveggja daga gömul. Einn er allur svargrár(Jóli ), einn svargrár með hvítan maga, sokka og trýni (Álfur) og svo þessi bröndótti (Dísa ljósálfur) sem greinilega minnir mann á blörraða gaurinn... Nöfnin eru náttúrlega bara bráðabirgðanöfn fyrir okkur til að aðgreina þá, ég veit ekki einu sinni fyrir víst hvaða kyn þeir eru!
Þessar litlu kisumömmur, allar þrjár, eru alveg dásamlegar. Passa vel upp á sín börn, ein Á neðstu hæðina hjá sinni fjölskyldu (dóttur minni og familý) ein Á stofuna okkar og ein Á hjónaherbergið. Við mannfólkið fáum bara að vera þarna inni upp á náð og miskunn. Þetta verður bara að vera svona fyrstu sólarhringana svo fara þær að slaka aðeins á. Dúfa mín er ekkert voða vinsæl af mömmunum en þegar þær eru fjarri leyfi ég Dúfu að þefa aðeins af kettlingunum sem mjáa þvílíkt (það er soddan rödd í þessari kisufjölskyldu!). Dúfu finnst þetta algjör kraftaverk og dúllur, hnusar voða varlega og gefur þeim pínulítið knús á nebbann. Æ, svo sætt. Um leið og litlu krúttin opna augun og verða smá sjálfstæðari þá slaka mömmurnar á.
Í dag ætla tvær fjölskyldur að koma og skoða kettlinga og velja sér sinn nýja fjölskyldumeðlim. Auðvitað fara þeir ekkert héðan fyrr en í janúar eða febrúar. En það er samt ekkert galið að velja strax og fylgjast með þeim vaxa og þroskast, ég get sett myndir hér og sent heim í maili ef fólk vill. Þannig að þið sem hafið pælt í að fá ykkur kettling á nýju ári, hafið bara samband 694-3153
Á morgun er hinn árlegi fjölskylduföndurdagur. Þetta hefur verið siður í fjölskyldunni í áraraðir og alltaf bætist í hópinn þegar fjölskyldan stækkar. Alveg dásamleg byrjun á aðventunni. Ég hlakka mikið til
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.11.2008 | 18:32
Krúttuknúsudúllur
Svona til að létta geðið og fá bros í sálina er gott ráð að skoða myndir af fallegum kisukrúttum allavega fyrir þá sem ekki eru með krúttin sjálf fyrir augunum. Við hérna á heimilinu erum svo lánsöm að geta knúsað þessi litlu krútt í tætlur og fylgst með mæðrum og börnum í sínu daglega amstri.
Þetta eru börnin hennar Eddu. Við erum ennþá alveg hugmyndalaus með nöfn á þau (bráðabirgðarnöfn því væntanlegir eigendur nefna þá auðvitað sínum nöfnum). Einhverjar hugmyndir?
Þessi er eiginlega alveg eins og Albus Dumbledore móðurbróðir.
Þetta litla kríli sem "syngur" hátt og mikið er líka Eddudóttir eða sonur, það er eiginlega ekki nokkur leið að sjá það strax. Allavega er þessi litli söngfugl Krútt Eddubarn
Svo er það Lady Alexandra á neðri hæðinni og hennar börn.
Ég tók þrjá af hennar fimm kettlingum og setti í sófann. Hinir sváfu svo fast að ég vildi ekki vekja þá. Þarna er Alex eða Lady Alexandra, Obama (sá dökki), Tígri á bakvið og Mýsla litla. Hún er lang minnst en rosa dugleg. Svo eru tveir stórir og miklir grábröndóttir, annar heitir Bangsi (sá stærsti) og hinn heitir Snati ...! já þau eru hugmyndarík á neðri hæðinni.
Tígri Alexöndruson (eða dóttir..)
Og að lokum ein mynd sem ég tók hérna á skrifborðinu mínu rétt áðan. Vala fylgist með mér allar stundir núna og hleypir mér ekki of langt frá. En hún er orðin svo sver að hún tekur hálft borðið hjá mér!
Ég var að reyna að ná umfanginu á henni en það virkar ekkert eins mikið á mynd. Ætli það sé satt að svart grenni....? Hún er samt ansi sver, finnst ykkur það ekki? En æ, hún er soddan knúsusnúlla
Og svo munum við að setja ljós í gluggann til að mótmæla myrkrinu sem var lagt yfir þjóðina okkar. Sýnum samstöðu okkar á milli og lýsum upp rétta vænlega leið heim, út úr þessum hremmingum sem við erum í.
Ljós og friður til ykkar elskurnar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
22.11.2008 | 18:25
Sköpunargleði í miðri kreppu
Hugurinn hafði skipulagt að fara á Austurvöll og ýmislegt annað í dag en skrokkurinn minn ákvað sófann og skrokkurinn ræður.... stundum. En þrátt fyrir hundleiðinlegan skrokk, mótmæli og kreppu þá er mikil sköpun í gangi á heimilinu. Dóttirin og tengdasonurinn teikna, eiginmaðurinn "endurskapar" skrokkinn sinn og hugann, ég er að hanna saumamynstur og kisurnar mínar fjölga þessu dásamlega kisukyni svo um munar.
Hér er Edda með sín krúttukrútt aðeins dags gömul. Það er svo ótrúlegt að fylgjast með goti og hvernig mamman sem ekki hefur farið á neitt námskeið eða lesið eitt eða neitt og samt veit hún námkæmlega hvað á að gera í fæðingunni. Hún kann rétta öndun og að karra, fyrst sleikja frá trýninu og svo áfram niður litla kroppinn. Mér finnst þetta alltaf jafnmagnað að fylgjast með dýrafæðingum.
Svo fannst henni ég hafa tekið alveg nóg af myndum. Ég á!
Meðan á gotinu stóð vildi hún Edda hafa mig á staðnum. Hún sótti mig inn í rúm en vildi ekki vera hjá mér þar, ég varð að koma fram í stofu og vera þar um nóttina með aðra hendi í fæðingarkassanum á gólfinu Og ég er svo auðtamin að ég gegni öllu sem kisurnar mínar segja. Dúfa fékk að vera með líka, hún var aðstoðar ljósmóðir sem knúsaði Eddu á milli hríða og gaf andlegan stuðning. En svo þegar litlu börnin voru fædd þá þótti Dúfa ekki nógu góður félagsskapur lengur. Hún er rekin út úr stofunni harðri ... loppu!
Þessar tvær kunna þó alltaf að skemmta sér saman!
Það er SVO gaman að teikna eins og mamma
Svo er amman að hanna krossaumsmynstur. Það tekur sinn tíma að fullkomna verkið en tvær myndir eru alveg að verða tilbúnar.
Í smíðum er meðal annars íslenskir fuglar og plöntur á ýmsum árstíma.
Þessi er vetrarmynd af snjótittlingi. Þeir koma til okkar í köldu veðri og syngja fyrir okkur og við gefum þeim korn á snjóinn.
"Jól í álfheimum." Þessi litla álfastúlka er að skreyta tréð með aðstoð trjáálfanna. Allir eru vinir og njóta stundarinnar saman.
Það eru fleiri myndir í vinnslu en þetta tekur allt aaaaaaðeins lengri tíma en ég reiknaði með en þetta kemur allt saman. Það er nú þegar búið að panta nokkrar pakkningar þannig að ég er bara bjartsýn
Já og svo er hún Vala mín Eddusystir komin alveg á steypinn og farin að undirbúa fæðingarbælið. Þannig að já, fleiri kettlingar á leiðinni. já, ég veit þetta er bilun en hvað á maður að gera? Þetta gerðist og þá er ekkert eftir annað en að njóta í botn og finna svo góð heimili fyrir dásemdarkrúttin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.11.2008 | 16:25
Hún er Ljós í tilverunni
Ég fæ alltaf hlýjutilfinningu þegar ég hugsa um Vigdísi forseta (já hún verður alltaf forseti í huga okkar). Hún stendur sem ljós og gefur af sér ljós, eins og góð móðir.
Ég er alveg sammála henni auðvitað, það er hægt að berjast við fátækt stoltur en þetta með mannorð þjóðarinnar er dálítið mikið meira mál. Það er eins og rifið hafi verið í hjartað á manni ... og snúið uppá.
Ég minni á "Kveikjum ljós í glugga til að mótmæla myrkrinu sem lagt var yfir þjóðina" sjá síðustu færslu hérna fyrir neðan.
Og fyrir kisuáhugavinina mína: ég og Dúfa (litla íslenska tíkin mín) vorum að ljósmæðrast í alla nótt Það komu fjögur þvílík knúsuljósakrútt út úr því ég set inn myndir fljótlega.
Kveikjum ljós í glugganum okkar og sýnum samstöðu! knús og ljós til ykkar allra
Íslendingar verða að endurheimta virðinguna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)