Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Tilraun til krúttmyndatöku

Sko, ég ætlaði að taka þvílíkt flottar krúttumyndir af kettlingunum. Því þeir eru náttúrulega yfirkrúttlega krúttulegir. En ég er greinilega ekki neinn yfirmátaljósmyndari eða alveg ótrúlega bjartsýn. Allavega komst ég að því að það er ekkert mjög auðvelt að láta fjóra krúttloðlinga sitja fyrir á mynd.

kettlingarnir hvernig fara þeir að atvinnuljósmyndararnir 1000

Voða uppstilling, rautt og hvítt með grænni jólagrein .... en neeeei, allir kettlingarnir fóru út og suður! LoLhahah Grin

kettlingur Eddudóttir 600

Einn náðist kjurr augnablik, (samt klipptur út úr mynd þar sem hinir voru á fleygiferð LoL)

kettlingarnir og Embla Sól 1000

Svo fékk ég mjög góða aðstoð. Æ, sjá hvað hún nýtur þess litla stúlkan mín að fá að strjúka aðeins voða varlega og segja: "aaaaahhhh" InLove


Kisukrúttustelpa

Eitt lítið kisukrútt... Joyful

 

kisustelpa Eddudóttir 1000
 
Bara smá sýnishorn á meðan ég tek fleiri myndir.  

 


Eiga þakkir skilið!

Þeir eiga þakkir skilið Hjálparsveitarmenn og konur, og Slysavarnarfélög allsstaðar. Vil bara minna fólk á að styrkja starf þeirra með því að kaupa hjá þeim flugelda og fleira sem þau selja til styrktar sínu starfi. Það er ómetanlegt að vita af þeim, alltaf tilbúin að hjálpa hvar sem þörf er á. 

Kærar þakkir fyrir gott starf Wizard

 


mbl.is Annríki hjá björgunarsveitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott mynd

Ég fékk þessa stórkostlegu mynd í maili frá vinkonu minni í Ástralíu. Og þar sem textinn með henni var svona:

"When someone shares with you something of value, you have an
obligation to share it with others!"

þá auðvitað varð ég að deila henni með ykkur elskurnar.Smile

Sólarlag á Norðurpólnum

Þessi texti fylgdi líka með:

"A scene you will probably never get to see, so take a moment and
enjoy
This is the sunset at the North Pole with the moon at its closest
point.

And, you also see the sun below the moon.
An amazing photo and not one easily duplicated."  

Ég hef aldrei komið þarna og er sennilega ekki á leiðinni, þannig að ég get ekki með nokkru móti vitað hvort þetta er alvara eða ekki en flott er myndin engu að síður. Fyndið að fá hana senda frá "næsta bæ" við Suðurpólinn Grin

Hafið það gott í snjónum og fallegu jólaljósunum. Leyfum Ljósinu okkar hið innra að loga glatt og gefum öðrum af því með okkur. JoyfulHalo


Frábært að heyra :-)

Við þurfum að standa vörð um þetta og passa að glata ekki þessari tengingu því hún er mjög mikilvæg, fyrir utan að hún er líka skemmtileg. Joyful

Samband við framliðna, berdreymi, englatenging, álfar, huldufólk og dvergar. Finnst okkur þetta ekki eðlilegt? Þessi tenging okkar hefur alltaf verið hluti af þjóðinni og okkar þjóðareinkennum. Halo

Dvergur 07  700

Pössum okkur að glata þessu ekki í okkar hraða og stressaða nútímasamfélagi. Smile 

Eruð þið ekki sammála?  


mbl.is Trú á dulræn fyrirbæri liggur djúpt í þjóðarsálinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært!!!!

Jibbíííííí!!!!!  Sko!, réttlætið sigrar að lokum. Jóhanna ég efaðist aldrei um orð þín, þú stendur við þitt.

Knús á þig Jóhanna. Þú ert frábær!!! Kissing Joyful Best að gefa hinum í ríkisstjórninni smá knús líka hahaKissing


mbl.is Tekjur maka skerði ekki bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilega aðventu

Gleðilega aðventu!

Jólakisa frá Álftanesi 1000

Munið að njóta og taka lífinu með ró Joyful 


Hamingjan

Aðventan er svo yndislegur tími til að eyða með börnunum. Við "gömlu hjónin" fengum Embluna okkar, barnabarnið lánaða í gær sunnudag á meðan foreldrarnir voru að læra fyrir próf. Mikið var yndislegt að horfa á hana upplifa ljósin og hreifanlega dúkkujólasveina sem spiluðu, máluðu, klifruðu og elduðu mat í helli ofl. Tré með ljósum á og allskonar glingur og skemmtilegheit. Hún ljómaði barnið! og amman og afinn ekki síður Joyful

Hamingjan Embla Sól 1000

Mikið er maður ríkur! ég bara gat ekki haldið þessari hamingju inni, varð að hleypa henni út Joyful

Knús og kveðjur til ykkar bloggvinir mínir í jólaundirbúningnum. Kissing


Hjartanlegar hamingjuóskir!!!

Hjartanlegar hamingjuóskir elsku Magga Pála!!! Kissing Þú ert svo sannarlega vel að þessum verðlaunum komin. Kíkið endilega á heimasíðuna hjá Hjallastefnunni:  Hjalli.is     Algjörlega frábært starf!! 

Mikið voru þetta góðar fréttir að lesa Joyful


mbl.is Margrét Pála hlaut Barnamenningarverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband