Sköpunargleði í miðri kreppu

Hugurinn hafði skipulagt að fara á Austurvöll og ýmislegt annað í dag en skrokkurinn minn ákvað sófann og skrokkurinn ræður.... stundum. En þrátt fyrir hundleiðinlegan skrokk, mótmæli og kreppu þá er mikil sköpun í gangi á heimilinu. Smile Dóttirin og tengdasonurinn teikna, eiginmaðurinn "endurskapar" skrokkinn sinn og hugann, ég er að hanna saumamynstur og kisurnar mínar fjölga þessu dásamlega kisukyni svo um munar. Joyful

 

edduborn-tveggja-daga.jpg

 

Hér er Edda með sín krúttukrútt aðeins dags gömul. Það er svo ótrúlegt að fylgjast með goti og hvernig mamman sem ekki hefur farið á neitt námskeið eða lesið eitt eða neitt og samt veit hún námkæmlega hvað á að gera í fæðingunni. Hún kann rétta öndun og að karra, fyrst sleikja frá trýninu og svo áfram niður litla kroppinn. Mér finnst þetta alltaf jafnmagnað að fylgjast með dýrafæðingum. InLove

fjogur-i-hnut.jpg

_g-a.jpg

Svo fannst henni ég hafa tekið alveg nóg af myndum. Ég á! 

Meðan á gotinu stóð vildi hún Edda hafa mig á staðnum. Hún sótti mig inn í rúm en vildi ekki vera hjá mér þar, ég varð að koma fram í stofu og vera þar um nóttina með aðra hendi í fæðingarkassanum á gólfinu Joyful Og ég er svo auðtamin að ég gegni öllu sem kisurnar mínar segja. Dúfa fékk að vera með líka, hún var aðstoðar ljósmóðir sem knúsaði Eddu á milli hríða og gaf andlegan stuðning. InLove En svo þegar litlu börnin voru fædd þá þótti Dúfa ekki nógu góður félagsskapur lengur. Hún er rekin út úr stofunni harðri ... loppu! 

andlitsba.jpg

Þessar tvær kunna þó alltaf að skemmta sér saman! 

embla-a_-teikna.jpg

Það er SVO gaman að teikna eins og mamma Joyful

Svo er amman að hanna krossaumsmynstur. Það tekur sinn tíma að fullkomna verkið en tvær myndir eru alveg að verða tilbúnar. 

snowbunting-small-virtual-s_734302.jpg

Í smíðum er meðal annars íslenskir fuglar og plöntur á ýmsum árstíma.

Þessi er vetrarmynd af snjótittlingi. Þeir koma til okkar í köldu veðri og syngja fyrir okkur og við gefum þeim korn á snjóinn. 

christmas-in-the-elf-realm-_734305.jpg

"Jól í álfheimum." Þessi litla álfastúlka er að skreyta tréð með aðstoð trjáálfanna. Allir eru vinir og njóta stundarinnar saman.

Það eru fleiri myndir í vinnslu en þetta tekur allt aaaaaaðeins lengri tíma en ég reiknaði með en þetta kemur allt saman. Það er nú þegar búið að panta nokkrar pakkningar þannig að ég er bara bjartsýn Joyful

Já og svo er hún Vala mín Eddusystir komin alveg á steypinn og farin að undirbúa fæðingarbælið. Þannig að já, fleiri kettlingar á leiðinni. já, ég veit þetta er bilun en hvað á maður að gera? Þetta gerðist og þá er ekkert eftir annað en að njóta í botn og finna svo góð heimili fyrir dásemdarkrúttin. Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég fór ekki á Austurvöll, ég var með mömmu á tónleikum í Hallgrímskirkju, það var reglulega mikil andleg upplyfting.

Bestu kveðjur.

Greta Björg Úlfsdóttir, 22.11.2008 kl. 21:08

2 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Sjá þessa sætu kisukrútthrúgu  Algjörar dúllur. Dýrin eru sko með þetta á hreinu og móðureðlið leynir sér ekki þar sem hún er að passa krílin sín  Og flott hjá kisunum að vera búnar að temja þig svona vel

Ég er forvitin með útsaumsmyndirnar. Hvað er í "pakkningunni"? Ertu með einhverjar fuglamyndir sem eru tilbúnar fyrir jólin? Ég efast ekkert um að það á eftir að verða áhugi fyrir þessum myndum

Knús á ykkur listamennina alla  

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 22.11.2008 kl. 23:03

3 Smámynd: Linda litla

Þvílíka krúttfærslan.

Knús á þig Ragga mín.

Linda litla, 24.11.2008 kl. 14:47

4 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Greta Björg, það hefur alveg örugglega verið yndisleg stund Sendi mömmu þinni bestu kveðjur

Sigrún, þau eru algjörar krúttudúllur þessi litlu kríli. Vala er ennþá feit og mikil um sig en gengur um létt á fæti eins og lipurtá þetta fer samt að koma hjá henni. Segðu honum Guðna frá mér að það er enginn ennþá sem er með "Magna-mynstur" en þeir eru rosamikil krútt fyrir því   Krúttin hennar Völu eru að byrja að opna augun ohhhhhh dásemd! ég set inn myndir fljótlega. 

Pakkningarnar munu innihalda allt sem þarf til að sauma myndina, mynstur, efni, nál og garn. Ég verð vonandi tilbúin með fyrstu fljótlega. Ég er bara haldin svo mikilli fullkomnunaráráttu að ég er alltaf að laga aðeins og breyta aðeins og svo aðeins meira ..... En þetta fer að koma

Linda, takk og knús til þín

Ragnhildur Jónsdóttir, 24.11.2008 kl. 14:57

5 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ætlaði náttúrulega líka að segja að færslan þín er þvílíkt sálargleðjandi, sem og allar þínar færslur - æðislegar myndir og lýsingar.

Greta Björg Úlfsdóttir, 24.11.2008 kl. 15:08

6 Smámynd: gudni.is

Yndislegt að sjá þessi litlu kisukrútt hjá þér. Hlakka mikið til að fá að líta augum þessa yndislegu hnoðra.

Kisuknúskveðja, Guðni

gudni.is, 24.11.2008 kl. 23:44

7 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Greta Björg, takk, takk og knús

Guðni, endilega kíktu við hjá mér einhvern daginn og líttu augum þessi dásemdarkrútt. Þeir fyrstu farnir að opna augun og allir dafna mjög vel. Ég bara skil ekki hvað Vala ætlar að stækka mikið áður en hún gýtur en það gæti haft eitthvað með óþolinmæði í mér að gera.... huhumm kannski er hún bara ekkert komin á tíma haha man ekki alveg dagsetningarnar sko En svona getur hún ekki verið mikið lengur allavega, hún tekur hálft skrifborðið þegar hún liggur við hliðina á tölvunni!   

Ég er að fara að rölta um með myndavélina og set inn nýjar myndir fyrir kvöldið. Knús og kveðjur á ykkur öll og setjið svo ljós í gluggann

Ragnhildur Jónsdóttir, 25.11.2008 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband