Bloggfćrslur mánađarins, ágúst 2007

Haustiđ er komiđ og hiđ fallega litaspil hefst

Jćja, ţá er haustiđ komiđ, skólarnir byrjađir og blómálfarnir farnir ađ pakka saman. Sum trén eru farin ađ gulna eđa rođna en ţó eru rósirnar í garđinum mínum enn í hamingjublóma. Smile 

Mér finnst haustiđ alltaf vekja frekar blendnar tilfinningar hjá mér. Ţađ er svo fallegt ţegar haustlitirnir ná ađ njóta sín og kertin eru óneitanlega notalegri á myrkum kvöldum. En ađ hugsa til langs vetrar og dimmu og kulda brrrrrr mér dettur bara í hug teppi og ullarsokkar. En ţá er ađ njóta dagsins í dag međ fallegu blómstrandi rósunum og ađ fylgjast međ dásamlegu litlu blómálfunum alveg á fullu ađ undibúa vetrardvalann.

hrutaber 2 600 Ţađ er svo yndislegt ađ fara í berjamó, leggjast út af milli ţess sem mađur týnir berin og skođa smágróđurinn. Allir hugsanlegir litir saman og ţvílíkur fjöldi af plöntum á litlu svćđi og allir virđast búa ţar í sátt og samlyndi Smile  Köngulóin sem röltir yfir lyngiđ á leiđ sinni í leit ađ nćsta ćti og litla fiđrildiđ sem flögrar yfir. Plönturnar blómstra og bera frć og nota goluna til ađ bera frćin til nýrra fćđingarstađa. Farfuglarnir ćfa oddaflug og njóta ţess međ mér ađ taka inn síđustu grćnku sumarsins, fallega blandađri rođa haustsins. Allt er í sátt og friđi eins og vera ber, nú er ég tilbúin ađ fara inn og kveikja á kerti og taka á móti vetrinum.

 

 


Takk kćrlega fyrir frábćra tónleika!

Frábćrt ađ fá tónleikana í beinni heim í stofu. Takk Kaupţing, takk RUV. Viđ sem eigum ekki alltaf heimangengt erum ţakklát ađ fá fleira en íţróttir sent heim í beinni Wink

Takk fyrir migSmile


mbl.is Aldrei fleiri á Laugardalsvelli
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Frábćr helgi á Dalvík!

Vinátturefillinn fékk frábćrar móttökur á Fiskidögunum á Dalvík. Ég ţakka innilega fyrir mig og takk öllsömul sem komuđ viđ í Ráđhúsinu. Grin 

Viđ vinnum svo áfram ađ ţví ađ breiđa út bođskap vináttu og ţess hversu gefandi er ađ vinna handavinnu og gefa af sér. Heimasíđan okkar er www.internet.is/friendshiptapestry Vinatturefillinn m folki 350  

Ţađ var virkilega ánćgjulegt ađ hitta og kynnast fullt af nýju fólki. Ég er svo sannfćrđ um ađ vinátta getur haft jákvćđ áhrif á ţróun samskipta í framtíđinni. Viđ ţurfum bara ađ sjá ađ ţađ er skemmtilegt ađ viđ séum ólík og ađ engin landamćri eru óyfirstíganleg. Ţví fleiri sem vinna ađ ţví hver á sinn hátt, ţví betra, ekki satt?

Vinátturefillinn samanstendur af handavinnu eftir fólk sem hugsar um vináttu á međan ţađ vinnur. 261 bútur frá yfir 20 löndum í 5 heimsálfum, og stöđugt bćtist viđ. Fyrir nú utan ţvílíkt safn af ólíkum handavinnuađferđum sem refillinn sýnir. Hann er nú ţegar orđinn mikilvćgt heimildasafn Smile

Takk kćrlega Dalvíkingar, knús Júlli og kćrar ţakkir öll sömul Grin

 


Rúmir sex metrar af vináttu og fegurđ

Jćja, nú leggjum viđ í hann. Vinátturefillinn opnar sýningu sína í Ráđhúsinu á Dalvík á morgun föstudag kl 18.00, í tengslum viđ vináttukeđju Fiskidagsins Mikla.

6,40 metrar, 260 bútar frá 23 löndum í fimm heimsálfum, hver og einn fylltur vinaorku, ţrá eftir friđi og fegurđ.

Vinatturefillinn 640 cm 400

Engin landamćri, eina krafan er ađ vilja vera vinur Smile

sjá heimasíđu Vinátturefilsins www.internet.is/friendshiptapestry

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband