4.7.2009 | 00:54
Fullkominn dagur með góðum verum af ýmsu tagi
Litli garðurinn minn ilmar af rósailmi og skartar grænu og bleiku í ótrúlega mörgum og fjölbreyttum tónum.
Lísurósin er alveg ófeimin að gefa af fegurð sinni í litum og ilmi og faðmar garðakvistinn að sér í einskærri gleði og vináttu.
Það er yndislegt að sitja úti og spjalla, drekka kaffi og borða ís með fjölskyldunni og góðum vinum. Bara njóta í rólegheitum, slaka á og leyfa fegurð Lífsins að flæða um sig óhindrað.
Edda mín vildi lestur með nýju Litlu álfaspáspilunum. "Það er nú óþarfi að vera svona alvarleg Edda mín, þetta lítur bara svo leikandi létt út sko" ;-)
Úlfarunninn á ótrúlega fallega hvít blóm sem keppast um að brosa yfir gamla vegginn. Purpurabroddurinn teygir sig inn á myndina til að vera með
Hún Stella mín stendur fyrir sínu og er farin að lita berin sín kirsuberjarauð
Það virkar náttúrulega mjög vel að lesa í álfaspáspil úti á svona degi, með blómunum og kisum, fuglasöng í bakgrunni og yndislegum öðrum góðum félagsskap
Þessa smávaxna hlédræga Þyrnirós felur sig nánast í skjóli Stellu kirsiberjatrés.
En maður skyldi muna að það getur borgað sig að beygja sig niður, jafnvel alveg á hnén, til að heyra hvað litla milda röddin segir. Hún gæti viljað sýna þér svona kraftaverk, svona fullkomna fegurð.
Eina sem þarf að gera er að opna hjarta sitt og taka við
Athugasemdir
Sérhver mynd sem þú sýnir fram hér er mjög falleg og heillandi!! Þetta er eitthvað sem er "beyond my understanding" :-)
Toshiki Toma, 7.7.2009 kl. 22:29
Þakka þér fyrir Toshiki Ég elska rósir og blómstrandi plöntur. Og kirsuberjatré, hvað heita þau nú aftur í Japan ... sakura? getur það verið? Álfarnir og hulduverurnar (eins og í álfaspáspilunum mínum) eru svo mikill hluti af íslenskri menningu. Er ekki til eitthvað svipað í Japan?
Ragnhildur Jónsdóttir, 8.7.2009 kl. 18:10
Yndislegar myndir. Garðurinn þarf ekki að vera stór til að bera öll þessi fallegu blóm Knús í Fjörðinn
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 9.7.2009 kl. 18:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.