Nýju íslensku "Litlu álfaspáspilin" / "The Elves Little Oracle Cards" ...

Um Jónsmessuna komu út nýju "Litlu álfaspáspilin" mín. Ég er rétt að koma þeim í fyrstu verslanirnar. Þvílíkt ævintýri, þetta er svo gaman og fullt af nýjum hlutum sem ég er að læra... Joyful

_lfaspaspilin_forsi_a_skann.jpg

Spilin og litla leiðbeiningabókin eru á íslensku og ensku og voða jákvæðar pælingar um okkar íslensku álfa og hulduverur, fugla og annað í íslenskri náttúru. Smile

Já og ég var líka að opna nýju heimasíðuna mína www.ragjo.is   hún er ennþá í vinnslu svo það bætist inn á hana daglega á næstunni.

Knús og kveðjur og góða helgi elskurnar Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Spilin eru náttúrulega bara frábær, falleg og íslenskari verða þau ekki.

Heimasíðan er flott snillingarnir ykkar

Til hamingju með þetta allt elskurnar 

Begga (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 20:50

2 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Þakka þér kærlega fyrir Begga   Nú er Lalli búinn að bæta heimasíðuna og enn á eftir að bæta inn á síðurnar. Þetta kemur smátt og smátt

Ragnhildur Jónsdóttir, 27.6.2009 kl. 22:33

3 identicon

Þetta er bara frábært, sjáumst fljótlega  :o)

Lally (IP-tala skráð) 29.6.2009 kl. 14:05

4 Smámynd: Fríða Eyland

Til hamingju með spilin þín, í hvaða verslunum í rvk er hægt að nálgast þau ?

Mig vantar svona spil...

kveðja

Fríða Eyland, 29.6.2009 kl. 22:36

5 Smámynd: Fríða Eyland

Fríða Eyland, 29.6.2009 kl. 22:37

6 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Takk Jóhanna, spilin auðvitað komin til þín alltaf svo gaman að koma til ykkar í Hlésey og ekki finnst henni Dúfu minni slæmt að hitta familíuna sína

Lallý, takk, já endilega hittast í te fljótlega

Fríða, þakka þér fyrir. Ég er rétt að byrja að setja þau í búðir. Spilin fást núna í Betra Lífi í Kringlunni og Gullsmiðjunni í Hafnarfirði. Og vonandi á fleiri stöðum seinna í vikunni

Knúskveðja og takk fyrir áhugann og hlýhuginn stelpur

Ragnhildur Jónsdóttir, 29.6.2009 kl. 22:50

7 Smámynd: Fríða Eyland

ok takk fæ gesti frá íslandi í ágúst til mín, þau fá þessar upplýsingar og koma þeim til mín.

Mikið hlakkar mig til að fá álfaspil

Kveðja frá UK

Fríða Eyland, 29.6.2009 kl. 23:03

8 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Þakka þér fyrir áhugann Fríða

Ragnhildur Jónsdóttir, 29.6.2009 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband