26.10.2008 | 12:39
Í vinaheimsókn
Við Dúfa skruppum í vinaheimsókn um daginn. Það er svo ágætt að geta dregið sig aðeins frá hversdeginum, sérstaklega hversdögum eins og þeir eru þessa dagana
Það var vel tekið á móti okkur með hlýju, björtu brosi og afslöppuðum notalegheitum
Vinirnir höfðu engar áhyggjur af líðandi stund, sögðu þetta engu breyta fyrir sig á meðan svæðið þeirra fær að halda sér.
Dúfa og börnin á heimilinu léku sér og hlupu um víðan völl, og heilsuðu uppá nokkra máva og krumma. En á meðan sátum við eldri og ræddum málin. Húsfreyjan er mikil hannyrðakona, svo við gátum skipst á hugmyndum og höfðum nóg að tala. Næsta sumar ætlar hún að kenna mér að nýta ýmsan efnivið úr umhverfinu sínu í myndverk. Það verður spennandi
Það hvarflar ekki að þeim að "gera upp húsið" eða "byggja við", hvað þá mála þakið....
Nei, það er bara notalegt þegar hluti fæðunnar vex beint fyrir ofan eldhúsið
Athugasemdir
Æðislegar myndir. Takk fyrir þetta.
Bestu kveðjur
Greta Björg Úlfsdóttir, 26.10.2008 kl. 21:11
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 27.10.2008 kl. 09:46
En yndislegt ég hlakka til að sjá hvað kemur út úr náttúru efniviðnum.
Sveitakonan sem er á leið með kveðju frá þér á fjallið.......
Sveitakona (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 12:59
Yndisleg heimsókn sem þið hafið farið í þarna
Verður spennandi að sjá hvað kemur út úr kennslunni.
Alltaf gaman að fylgjast með þér, yndisleg frásögn og yndislegar myndir!!!!
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 8.11.2008 kl. 14:42
Greta Björg, þakka þér fyrir
bestu kveðjur til þín.
Sigrún, knús á ykkur öll
Sveitakona, takk takk, ég get varla beðið að koma og kíkja sjálf í heimsókn til þín og á fjallið...
Ragnheiður Ása, Þakka þér kærlega fyrir
Ég vona að þið fyrirgefið hvað ég er rosalega lítið (ekkert! )á blogginu þessa dagana, þetta breytist örugglega fljótlega. Bara soldið mikið að gera akkúrat í augnablikinu.
Knús til ykkar allra sem kíkið hér við 
Ragnhildur Jónsdóttir, 8.11.2008 kl. 17:38
Ég skil það vel, stundum hefur maður einfaldlega í önnur horn að líta en að blogga!
Sjáumst heilar á blogginu eða annars staðar.
Greta Björg Úlfsdóttir, 8.11.2008 kl. 17:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.