Geislar sólar dansa á öldum hafsins

Við bæjarbörnin skruppum í sveitasæluna í dag. Þvílík dásemd að hafa tækifæri til að komast út fyrir bæjarmörkin og hreinsa hugann og sálina. Maður er svo endurnærður innan og utan eftir svona dag í góðra vina hópi í Paradís Heart
 
baejarbarni_-i-sveitinni.jpg
Bæjarbarnið mitt sem er sveitahundur í sálinni naut sín til hin ítrasta Joyful það sama var hægt að segja um eigendurna í lopapeysunum, þarna er maður í tengslum við Lífið.
 
falleg-fjorufer.jpg
 
Í augnablikinu hanga þung ský yfir en þó er bjart og sólargeislarnir ná niður fyrir skýin og dansa fagurlega á öldum hafsins.
Dílaskarfur teygir sig og reygir á fjarlægu skeri á meðan hrafninn...
 
og-hrafninn-sag_i-sogu-a-fl.jpg
 
... hinn óforbetranlegi ærslabelgur, varð að stríða hundunum aðeins um leið og hann minnti okkur mannfólkið á hina eilífu hringrás Lífsins...
 _a_-flae_ir-a.jpg
 
Það flæðir að og það fjarar út
 
og Lífið heldur áfram Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Þú ert snillingur í að gera neikvæða og erfiða hluti jákvæða. Alveg dásamleg upplyfting að lesa orðin þín  Það ætti að "nýta" ykkur listamennina betur í samfélaginu. Þið hafið svo frjóa hugsun og kunnið að koma orðunum/hlutunum frá ykkur á svo mannlegan og skemmtilegan hátt, og þar ert þú sko engin undantekning. Bestu kveðjur til ykkar frá Grindjánunum

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 10.11.2008 kl. 01:45

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Yndislegar myndir Ragnhildur mín, ég er sammála Sigrúnu, þegar að kreppir þá eru það einmitt þeir listfengu sem bjarga sálartetrinu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2008 kl. 10:56

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Yndislegar myndir.

Greta Björg Úlfsdóttir, 10.11.2008 kl. 13:49

4 Smámynd: Brynja skordal

Alltaf gott og nauðsynlegt að leika sér úti í náttúrunni flottar myndir hafðu það ljúft Elskuleg

Brynja skordal, 11.11.2008 kl. 01:38

5 Smámynd: Bullukolla

yndislegt

Bullukolla, 11.11.2008 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband