9.5.2008 | 10:40
Pæling dagsins...
Það er hægt að sjá og horfa á svo margan hátt. Það er hægt að horfa og horfa en sjá ekki neitt. Svo er hægt að horfa á þann sem horfir og sjá allt annað en sá sem virkilega er að sjá...
Svo er hægt að sjá.... eiginlega ekkert, þó maður horfi og jafnvel sjái ......
Sjá myrkur eða ljós, neikvætt eða jákvætt, svart/ hvítt eða í lit.
Fer það ekki eftir skapinu í manni sjálfum hvert maður horfir og hvað maður sér?
Svo er hægt að horfa út á við og horfa inn á við. Horfa á speglun ljóss eða beint í ljósið.
Svo þegar maður hefur horft og séð, notið og velt sér upp úr fegurð eða ljótleika, allt eftir því hvað maður sá. Já, þá er gott að leggja sig bara og horfa inn í draumheima.
Sofa fast og ferðast langt inn í draumalandið.
Þar er stundum hægt að sjá ýmislegt skemmtilegt, leiðinlegt, skrítið og jafnvel afar athyglisvert....
En ef maður ætlar virkilega að sjá hlutina eins og þeir eru, þá er betra að vera vakandi og opna gluggann...
Kíkja út, í alvöru og leyfa barninu að sjá ...
.... hvað er þarna úti? Þorum við að horfa lengra? Sjá það sem aðrir sjá? Horfa með opnum augum og taka á móti Lífinu?
Þorum við að sjá allt sem hægt er að sjá, sjá Lífið? Þorum við að horfa út fyrir okkar lóðamörk, okkar þægindasvæði? Hvað er þar? Kannski er það eitthvað skemmtilegt, jafnvel fallegt eða gott. Eða er það bara örugglega vont ...? og betra að vera ekkert að skoða einhverja óvissu?
Við munum aldrei vita hvað er handan girðingar, ef við þorum ekki að horfa á og sjá það sem er utan okkar garðs, okkar venjulega öryggissvæðis. Er eitthvað þar? Kannski ekki, ekkert sem vert er að sjá..... eða hvað?
Hver er þetta? Hvaðan kemur hann? Er hann ímyndun?
Hann er allt öðru vísi en við... eða er það ekki???
Lífið fær prik dagsins... og prik allra daga
Athugasemdir
Frábær færsla, skemmtileg pæling, það sem maður sér og ekki sér, og hvað allt skýrist þegar maður sér. Knús á þig inn í daginn, og takk fyrir skemmtilegar myndir Ragnhildur mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2008 kl. 12:27
Þetta eru nú meiri krúttin
Bestu kveðjur til þín og þinna.
Greta Björg Úlfsdóttir, 9.5.2008 kl. 13:46
EInstaklega falleg færsla elsku Ragga. Mikið eru myndirnar líka fallegar, ég er svo rosalega skotin í litla kútnum, kysstu hann frá mér. Kær kveðja og njóttu helgarinnar
Ásdís Sigurðardóttir, 9.5.2008 kl. 15:39
Mikið er þetta falleg færsla og skemmtilegar myndir. Óska þér og þínum góðrar Hvítasunnuhelgar.
Svava frá Strandbergi , 10.5.2008 kl. 00:12
Kærar þakkir Ásthildur, Greta, Ásdís og Guðný Svava. Ásdís, alveg á hreinu, ég kyssi hann sko frá þér
Góða helgi allar saman
Ragnhildur Jónsdóttir, 10.5.2008 kl. 10:11
Ef að einvher á skilið pril, þá ert það þú Ragga. Fyrir þessar skemtilegu myndir, það er svo gaman að skoða myndirnar þínar.
Linda litla, 11.5.2008 kl. 03:17
Yndisleg færsla hjá þér, þægileg og hugvekjandi. Takk fyrir þetta Ragga mín, fékk mig virkilega til að hugsa. Nú er ég alvarlega að velta fyrir mér að fara út fyrir lóðamörkin í dag, algjörlega grínlaust. Eigðu ofsalega góðan dag
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 12:52
Yndislegar myndir og yndislegar pælingar!
Takk eins og alltaf
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 13.5.2008 kl. 12:31
Einstaklega vel skrifað hjá þér og skemmtilegt hvernig þú tengir myndirnar við pælinguna. Þetta eru orð að sönnu Takk fyrir
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 13.5.2008 kl. 22:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.