Lífið í Græna litnum...

Ég er frekar löt að blogga þessa dagana enda hefur heilandi græni vorlitur Náttúrunnar, algjörlega tekið mig yfir. Stundum vegna þess að hann er svo yfirgnæfandi en stundum af því ég er að leita að honum...

Leitin-leiðin-að-græna-litn

Leitin/leiðin að græna litnum

mosi,-lyng-og-fjölskyldur

 Það er oft nauðsynlegt í lífinu að beygja sig niður til að sjá græna litinn...

fegurðin-er-þess-virði-að-b

... og fegurðina í hinu smáa og hógværa.

 Það dugar ekki að standa og hreykja sér, þá getur farið illa...

Trölli-í-Heiðmörk

... eins og hjá þessum trölla, hann dásamaði sjálfan sig í ljósinu ... aaaaðeins of lengi.

 Í Heiðmörk rakst ég líka á góða og trygga vini sem búa saman í sátt og friði.

Vinátta-trjánna

... þó ólíkir séu og þröngt um pláss.

Ást-í-Heiðmörk

Þar var líka par sem sýndi hvort öðru ást sína á fallegan og áhrifaríkan hátt.

Náttúran er óendanlega fögur í öllum sínum ólíku myndum. Hún er full af Lífi

og nýjum ævintýrum, hlýju, orku og félagskap.

Fögur-jörð

Því megum við aldrei gleyma. Njótum Náttúrunnar og þess sem hún hefur að bjóða

en munum að hún ER heimili okkar og Móðir. 

Smile

 Gleðilegt sumar elskurnar, ég mun kíkja inn á bloggið annað slagið í sumar en kannski ekki segja margt í bili. Sendi ykkur Ljós og þakklæti fyrir samfylgdina í vetur HaloHeartHalo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Hæ Ragnhildur.

Takkf yrir fallegt blogg og innileg skrif sem smita og heilla. Takk fyrir yndisleg comment á minni síðu alltaf. Kveðja í bæinn.

Júlíus Garðar Júlíusson, 16.5.2008 kl. 14:25

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Yndislegar myndir Ragnhildur mín.  Knús á þig elskuleg mín og hafðu það gott í sumar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.5.2008 kl. 09:34

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

"Landið er fagurt og frítt" takk fyrir að sýna okkur þetta kæra vinkona. 

Ásdís Sigurðardóttir, 17.5.2008 kl. 21:37

4 identicon

Já græni liturinn er farinn að kalla á okkur úr öllum áttum.  Það er svoooooooo notalegt.  Njóttu náttúrunnar krúttan mín og takk fyrir æðisleg sjónarhorn af móður okkar allra.

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 22:56

5 Smámynd: Brynja skordal

Flottar myndir hafðu ljúfan sunnudag

Brynja skordal, 18.5.2008 kl. 00:09

6 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Júlíus kærar þakkir, bestu kveðjur til ykkar.

Ásthildur, takk takk og bestu kveðjur til þín í græna Ísafjörðinn og kúluna þína

Ásdís, takk og bestu kveðjur til þín austur fyrir fjallið

Guðrún Arna, þessi yyyyndislegi græni litur mmmmm hann nær alveg inn í sálina þessa dagana Bestu kveðjur til þín í græna Hveragerðið

Brynja, takk takk, bestu kveðjur

Ragnhildur Jónsdóttir, 19.5.2008 kl. 00:00

7 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Græni liturinn heillar. Frábærar myndir hjá þér að venju. Hafðu það gott í sumar. Bestu kveðjur

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 19.5.2008 kl. 00:31

8 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Það er greililegt að hér er að ferðinni mannsekja, sem hefur þann hæfileika að geta séð fegurðina í öllu. Takk fyrir að deila þessu með okkur hinum.

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 19.5.2008 kl. 14:19

9 identicon

Falleg færsla og flottar myndir.

Ragga (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 15:36

10 Smámynd: halkatla

útúrgeggjaðar myndir - umm hvað Ísland er fallegt

halkatla, 22.5.2008 kl. 16:27

11 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Hafðu það gott í sumar,fallegar myndir.

Magnús Paul Korntop, 26.5.2008 kl. 09:12

12 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Alltaf jafn yndislegar myndirnar þínar, auðséð að þú hefur sko opin augun fyrir fegurðinni sem leynist allt í kring um okkur, ef við bara horfum......

Takk fyrir að leyfa okkur að njóta með þér

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 29.5.2008 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband