21.12.2008 | 11:07
Hátíð Ljóssins og Lífsins
Jólin koma og á hvað sem við trúum hljótum við að halda þessa hátíð sem hátíð Ljóssins. Ljósið sem fæddist með Jesú Kristi, ljósið sem fæðist með hækkandi sól og/eða Ljósið sem fæðist innra með okkur þegar við erum tilbúin að taka við því í hjartað
Það er oft talað um jólin sem hátíð fjölskyldunnar og hátíð barnanna. Og það má svo sannarlega taka undir það. Það má ekki gleyma í því samhengi, barninu innra með okkur, það er svo mikilvægt að halda því lifandi fjörugu og forvitnu, glöðu og bjartsýnu
Ég horfði á litlu kisufjölskyldurnar mínar og velti fyrir mér af hverju þær gjóta alltaf á þessum tíma ársins hjá mér. Mér finnst það svo fallegt og táknrænt að hafa fullt hús af nýju lífi mitt í köldum og dimmum vetrinum. Svo mikið líf og ljós
Gott að vera í örygginu hjá mömmu
Systkinin leika saman glöð og kát
Ekki verra að mamma er með áfast leikfang!
Tvist og Bast að hasast með mömmu sín. Bast heitir sko eftir Egypsku kattagyðjunni en þá passaði svo vel að "tvíburi hennar" heiti Tvist...... lógík?
Þetta skott er alveg heillandi leikfang
Það er svo gaman að vera til! knúsiknús
Svo þurfa mömmur að hvíla sig og viðra inn á milli og vera "fullorðins" með öðrum fullorðnum
Við þessi "fullorðnu" sátum lengi úti í snjónum og horfðum á fegurð lífsins og hlustuðum á þögnina...
og bara nutum fegurðar Lífsins
Svo er það alvara jarðlífsins á ný: MATUR!!
Hér myndast oft biðröð upp stigann
Mæðgur, Eddamamma og Elín litla. Ég kalla hana það eftir hinum nýja eiganda sínum sem kemur og heimsækir hana reglulega og fylgist með
Elínarnar tvær. Til hamingju með afmælið Elín Dagný!!
Bast og Elín litla að rannsaka, það er svo margt að uppgötva og finna, skoða og leika með.
Svo eru sumir sem þykjast svo fullorðnir að þeir þurfa ekkert að rannsaka eða leika sér lengur. Herra Albus Dumbledore finnst alveg nóg að heyra í litlu "vitleysingunum" í fjarska og lauma sér svo bara inn í miðju kyrrðarherbergis húsfreyjunnar Hér er allavega alltaf ró og friður.
Ég get nú alveg hvíslað því að ykkur að hann kann alveg að leika sér, fer bara vel með það svona opinberlega...heldur að það sé ekki nógu kúl...
Munum að leika okkur og njóta lífsins. Það koma jól alveg sama hvað, gerum hjörtun okkar tilbúin að taka við Ljósinu og Kærleikanum sem flæðir og gefum það svo áfram
Ljós, Kærleikur og Líf til ykkar allra elskurnar
Gleðilega hátíð Ljóssins!
Athugasemdir
Jiiiiiiiiii hvað þetta eru falleg kisubörn hjá ykkur. Manni fer bara að langa í svona eins og eitt stykki.
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 21.12.2008 kl. 12:01
Fallegar myndir af fallegum krúttkisum.
Magnús Paul Korntop, 21.12.2008 kl. 15:19
Já ljósið og lífið það er alveg samtvinnað og svo lífsnauðsynlegur þáttur í þessari hringrás okkar. Yndislegar myndir (hvað þeir eru sætir með þessi bláu augu). Fegurðin engu lík í snjónum, allt svo hreint og tært.
Knús og klemm Ragga mín
Begga (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 16:58
Yndislegar myndir og frásögn. Þessar kisur bræða mann alveg...hlakka til að knúsa þær
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 21.12.2008 kl. 21:12
Yndislegar myndir, mig langar að heimsækja ykkur fjótlega á nýju ári.
Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2008 kl. 23:13
Matthilda, takk, já þau eru ómótstæðileg þessi litlu jólakisukrútt
Magnús, takk
Begga mín takk, Knús til þín í fallegu sveitina þína
Sigrún takk, þessar litlu knúsukisur eru algjör krútt. Maður er í stöðugu krúttkasti yfir þeim
Ásdís, takk, endilega láttu sjá þig.
Innilegustu jólakveðjur til ykkar allra. Hafið það nú gott og njótið ljóssins.
Ragnhildur Jónsdóttir, 23.12.2008 kl. 00:02
Hvílíkir gersemar.Jólakveðjur til ykkar allra með von um að allt gangi vel hjá ykkur og sérstaklega Lárusi.
Kveðja María
María Anna P Kristjánsdóttir, 23.12.2008 kl. 11:03
Þakka þér fyrir María mín, það gengur allt mjög vel hjá Lalla allt að koma. Bestu jólakveðjur til ykkar allra
Ragnhildur Jónsdóttir, 25.12.2008 kl. 19:59
Ragnhildur mín, kærar þakkir fyrir sendinguna Er búin að hafa engilinn í barminum yfir jólin. Mömmu líkaði vel við myndina og ég er voða stolt af að vera kúnni númer eitt og ég efast ekkert um að þeir eiga eftir að verða miklu fleiri í framtíðinni Vona að þið eigið öll yndislega hátíð og að nýtt ár færi ykkur hamingju og góða heilsu.
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 26.12.2008 kl. 02:19
Yndislegt að sjá allt þetta sakleysi og fegurð elsku Ragnhildur mín. Kærleikskveðja til þín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2008 kl. 18:32
fallegar myndir! Hún Dúfa er bara eins og engill á þessari jólamynd,- eða hún Embla Sól - þvílíkt ljós!
johanna (IP-tala skráð) 30.12.2008 kl. 19:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.