21.5.2007 | 11:48
Sumar og vetur berjast um yfirráðin
Síðasta bloggfærslan mín fjallaði um hamingjusólardag. Í morgun snjóaði hinsvegar! Maður ætti svosem ekkert að verða hissa á því. Kettirnir mínir horfðu út um gluggann í morgun og litu síðan ásökunaraugum á mig! eins og ég geti eitthvað breytt veðrinu!
Þessi litli blettur sem ég sé af Esjunni héðan úr eldhúsinu mínu, er alhvítur. Það er auðvitað mjög fallegt en ekkert voða sumarlegt ..... Það er samt eitt gott við svona daga, maður veit að þeir eiga eftir að breytast Sólin og sumarið kemur aftur og kettirnir verða glaðir á ný. Annars eru þeir svosem aldrei fúlir lengi, þeir hlaupa hér um allt hús á eftir hvor öðrum.... kannski helst að það trufli hádegislúr hundanna.... æ, það er vandlifað í henni veröld
En rétt á meðan ég var að skrifa þetta, þá kom sólin fram úr skýjunum. Og gleðin með. Ég heyri meira að segja fuglasöng úr nálægu tré. Já, sumarið fór ekkert, það tók bara smápásu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.