19.5.2007 | 14:38
Sólin skín og lífiđ er yndislegt
Sólin skín í heiđi ... og Hellisgerđi, fuglarnir syngja og börnin leika sér úti. Lífiđ verđur bara ekki mikiđ dásamlegra en á svona dögum. Mađur trúir ţví ađ allt geti alltaf veriđ gott. Bóndinn ađ slá blettinn, fuglarnir hinkra ađeins á međan hávađinn gengur yfir, ţađ verđur nú ekki lengi, ekki er grasbletturinn ţađ stór Svo er ţađ bara ís og barnabarniđ, engillinn okkar, ađ skođa grćna grasiđ og handfjatla ţađ í fyrsta skipti á ćvinni. Ţađ er undursamlegt ađ uppgötva lífiđ uppá nýtt í gegnum undrunaraugu litla engilsins. Allt er nýtt, allt er ferskt og spennandi. Hundsskottiđ sem sveiflast til og frá í hamingju sinni, kötturinn sem slćr sínu skotti í grasiđ og gefur frá sér undarleg hljóđ, ţar sem hann fylgist međ hunangsflugu fljúga á milli blómanna. Starrarnir á ţakinu sem herma eftir söng ţrastanna og auđnutittlinganna í Hellisgerđi. Nágrannarnir bjóđa góđan daginn og kaffiđ er sterkt, gott og nýmalađ.
Lífiđ er yndislegt
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.