3.12.2008 | 13:19
Jólakrúttuknúsur og jólaföndurgleđi
Allt í einu yfirtók jólaađventugleđin hjartađ og vetrarkreppuóyndiđ hvarf. Nú get ég fariđ ađ raula jólalög, yfirskreyta heimiliđ, skrifa jólakort og pćla í jólagjöfunum
Fjölskyldan mín hefur alltaf Jólaföndur- og piparkökubakstursdag á fyrsta sunnudegi í ađventu. Viđ erum orđin á milli tuttugu og ţrjátíu manns á milli tveggja ára og áttrćđs.
Afinn ađ kenna Emblunni sinni handtökin
Listamennirnir niđursokknir í föndriđ
Mín sjálf ađ föndra.
Systir mín og tvö af hennar barnabörnum.
Fullt hús af gleđi og sköpunarorku, hamingju og fjölskyldusamheldnistilfinningu. Piparkökur eru bakađar og föndrađ jólaföndur af lífsins jólagleđi. Jólatónlist, malt og appelsín, borđa saman, baka og mála piparkökur, sauma og líma, spila á píanó, hlátur og grín, hveiti á brosandi andlitum, lím á fingrum og jólagleđi í hjarta. Dásamlegt!
Í ár var kramarhús ţemađ, unniđ úr pappír eđa taui, límt eđa saumađ, blúndur eđa perlur, jólapappír og límmiđar. Allt eftir getu, smekk og áhuga. Myndin sýnir hluta af afrakstrinum Gleđin og samveran er samt ađalatriđiđ og ţetta er alltaf svoooooooo gaman.
Og ţegar heim var komiđ beiđ fullt hús af krúttum. Ţau stćkka og flest búin ađ opna augun. Ţvílík dásemdarkrútt
Alex međ sín krútt ca 2 vikna eđa rétt rúmlega.
Embla Sól á ţessa litlu fjölskyldu ţví Alex (Hennar hátign Lady Alexandra ;-) er ţeirra kisa (mađur skyldi nú ekki gleyma ţví sko...). En bćđi Embla Sól og Alex leyfa okkur hinum sko alveg ađ skođa og knúsast međ krúttin ţeirra.
Ţessi krútthrúga eru börnin hennar Eddu, ca 12 daga gömul. Ţessi brúnbröndótti er kominn međ eiganda, viđ köllum litla krúttiđ núna Elínu eftir nýja eiganda sínum Hún kemur í heimsókn og fylgist međ krúttinu sínu vaxa og dafna ţangađ til hún fćr hann afhentan einhvern tíma eftir nýár.
Gleđilega ađventu elskurnar og muniđ ađ njóta hverrar stundar
Athugasemdir
Yndisleg fćrsla og mikil gleđi hjá ykkur ég ćtla ađ reyna ađ ná jólakassanum mínum út úr skápnum í dag, svolítiđ erfitt svona á hćkjunum en ţađ tekst. Krútt kveđjur í fjörđinn.
Ásdís Sigurđardóttir, 3.12.2008 kl. 13:25
Hvađ er hćgt ađ hafa ţađ betra en í fađmi fjölskyldunnar. Ţetta hefur veriđ yndislegur dagur hjá ykkur. Sniđugt ađ hafa svona venju. Kisukrúttin eru bara ćđisleg og Embla ofurkrútt langflottust
Sigrún Ţorbjörnsdóttir, 3.12.2008 kl. 22:55
Ţakka ţér fyrir Ásdís, já ţađ er alltaf mikil gleđi ţegar viđ hittumst fjölskyldan og gerum eitthvađ skemmtilegt Vona ađ ţér fari ađ líđa betur elsku Ásdís mín. Knús og kveđjur til ţín
Sigrún, já ţetta var yndislegur dagur eins og alltaf.
Í kvöld kom yndislegur bloggvinur minn, til okkar ađ velja kettling. Hann pantađi Bangsa Alexarson, ţannig ađ nú eru fjórir kettlingar fráteknir! Ađeins 8 eftir ólofađir Ţađ er svo gott ađ vita af ţessum krúttukisum fara á góđ heimili
Ragnhildur Jónsdóttir, 3.12.2008 kl. 23:56
Skemmtilegur siđur. Kćr kveđja til ykkar allra og ţá sérstaklega til Lárusar.
Kveđja María
María Anna P Kristjánsdóttir, 7.12.2008 kl. 12:20
Manni hlýnar um hjartarćtur ađ horfa á ţessar fjölskyldumyndir, allir samtaka viđ undirbúning jólanna. Bestu kveđjur til ţín.
Greta Björg Úlfsdóttir, 8.12.2008 kl. 12:05
María Anna, já ţetta er alltaf svo gaman
Greta Björg, föndurdagurinn er algjörlega ómissandi í jólaundirbúningnum
Viđ Lárus biđjum kćrlega ađ heilsa ykkur báđum og öllum ykkar
Ragnhildur Jónsdóttir, 8.12.2008 kl. 15:03
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.