10.7.2008 | 10:08
"Saumuð málverk" í Kjósinni
Við dvergurinn ætlum að sýna okkur (og kannski fleiri myndir með ... ) laugardaginn 19. júlí frá kl. 13. - 17. að Eyrarkoti við Hvalfjarðareyri, í Kjós. Þann dag er mikill hátíðisdagur í Kjósinni, kallaður, Kátt í Kjós
Eyrarkot er lítill gamall bær (gamla póst- og símstöðin) sem hefur verið gerður svo skemmtilega upp og er núna Ferðaþjónusta með gistingu fyrir 10 manns, ásamt sal, þar sem ég einmitt sýni.
Ég fór á námskeið þarna í byrjun maí og algjörlega kolféll fyrir staðnum. Það er frábært útsýni frá Eyrarkoti yfir Hvalfjörðinn og yndisleg orka þarna og Lífið í Náttúrunni í kring er meiriháttar! Erla Stefánsdóttir hefur gert kort af álfa- og huldufólksbyggðinni þarna í kringum bæinn.
Þetta er magnaður staður!
Klukkan tvö mun vinkona mín Jóhanna Harðardóttir kjalnesingagoði, segja frá hinni fornu trú okkar íslendinga. Það verður fróðlegt og skemmtilegt
Ég mun ekki senda út nein boðskort en vonast til að áhugasamir sjái þetta bara hér á blogginu og svo á Kjos.is Það er notalegur bíltúr að skreppa út úr bænum og upp í Hvalfjörð, fá sér kaffi og kleinur og skoða myndir Það verður ýmislegt um að vera í Kjósinni laugardaginn 19. júlí, fyrir utan hvað verður obbosla gaman að sjá myndirnar mínar ..... og mig
Það eru allir velkomnir, látið sjá ykkur!
Athugasemdir
Mikið er þetta spennandi. Verst að ég kemst ekki að sjá en ég vona að þú haldir aðra sýningu sem ég geti mætt á.
Til hamingju.
Ragga (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 12:14
Vá fallegar myndir listaverk ætla að reyna kíkja og skoða ef ég kemst hafðu það ljúft Elskuleg
Brynja skordal, 10.7.2008 kl. 15:13
Mikið er þetta fallegt hjá þér. Ég er alveg vís með að þiggja boðið
Gangi þér vel með þetta allt saman
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 10.7.2008 kl. 19:54
Ragga takk kærlega, það er aldrei að vita nema maður haldi aðra sýningu ... einhvern tíma í framtíðinni.
Brynja takk innilega, vonandi kemstu, það væri gaman
Sigrún takk kærlega, líst vel á að þú látir sjá þig
Það væri frábært að sjá sem flesta í Kjósinni, munið bara að gefa ykkur fram við mig. Það er ekkert víst að ég þekki ykkur af litlu myndunum en ég verð örugglega auðþekkjanleg með feimnissvip út í horni ....
Ragnhildur Jónsdóttir, 11.7.2008 kl. 00:13
Frábært hjá þér að halda sýningu! Þú ert mjög hæfileikarík kona hef ég séð á myndunum hér á blogginu þínu. Vil ekki lofa mér til þín, en verð svo sannarlega með þig í huga. Gangi þér vel
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 04:03
Frábærar myndir hjá þér. Því miður treysti ég mér ekki í svona bíltúr, en vonandi get ég heimsótt þig heim seinna. Gangi þér vel
Ásdís Sigurðardóttir, 11.7.2008 kl. 14:03
P.s. Hvað er kríumyndin stór og hvað kostar hún???
Ásdís Sigurðardóttir, 11.7.2008 kl. 14:03
Ég verð á öðru landshorni, svo ekki get ég þegið gott boð!
Gangi Ykkur vel á laugardaginn ( þér og flotta dvergnum þínum)
Kveðja að vestan
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 11.7.2008 kl. 14:14
Takk hefði örugglega mætt hefði ég verið í nágrenninu Ragnhildur mín. Til hamingju með dverginn og þig.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.7.2008 kl. 11:21
Takk kærlega Arna mín
Takk innilega Ásdís mín. Ég er búin að senda þér mail í sambandi við myndina, við verðum í sambandi.
Vestfirðingarnir, Ragnheiður og Ásthildur, takk takk. Þið búið dulítið langt frá Hvalfirðinum Takk fyrir góðar kveðjur
Ragnhildur Jónsdóttir, 12.7.2008 kl. 12:43
Ótrúlega flottur þessi dvergur. Ég ætla endilega að reyna að komast ef mér verður batnað af lungnabólgunni. Annars til hamingju með sýninguna.
Svava frá Strandbergi , 17.7.2008 kl. 18:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.