10.4.2008 | 10:36
Sólskinsdagur
Mér var bent á það um daginn að ég setti næstum eingöngu myndir af fjórfættu fjölskyldumeðlimunum hérna inn, eins og ég ætti bara ekki tvífætta fjölskyldu líka! Svo nú ætla ég að bæta aðeins úr því. Ég nefnilega á svo dásamleg börn að það er eiginlega skandall að ég skyldi ekki monta mig af þeim fyrr
Yngsti sonur minn á afmæli í dag 18 ára!! Til hamingju yndislegi stóri dásamlegi fullorðni drengurinn minn!! Þar sem hann er frekar lítið fyrir myndatökur og myndsýningar af sér, set ég mynd af hundinum hans í staðinn.... þetta er semsagt Punktur Ástráðsson
Það er svona með sumar stjörnur, þeir hafa "stand-ins" í myndatökum sko
En hér eru myndir af hinum tveimur börnunum mínum og þeirra fylgikrúttum.
Elsti sonurinn, frumburðurinn minn hann Ragnar og Anna kærastan hans á leið í fermingarveislu
Og "Litla familían" mín af neðri hæðinni að koma úr fermingarveislu. Dótturdóttir mín Embla Sól að syngja "góðan daginn, daginn, daginn..." og pota í nefið á mömmu sín. Pabbi hennar, hann Smári og Sirrý Margrét dóttir mín.
Í dag eru öll börnin mín uppkomin, það er visst skref að ganga í gegnum, eins og fyrsti skóladagur, fyrsta ferming, síðasta fermingin. Og nú eru þau öll fullorðin..... er ég þá orðin gömul ... ? Það er ágætt, mér líst vel á að vera "gömul". Það er yndisleg Guðsgjöf að fá að "eiga" svona góð og dásamleg börn og tengdabörn og yndislegt barnabarn. Öll í nánum samskiptum við okkur og hvert annað. Ég held það sé ekki hægt að hugsa sér betri lífsgæði.
Góður Guð, takk fyrir gott líf Mér finnst ég dekruð af Himnaföðurnum.
Athugasemdir
Ef allt gengur svona sæmilega í lífinu,börnin í góðum gír þá hefur Himnafaðirinn gert sitt starf.Góð hugleiðing hjá þér Ragga. Kveðja María
María Anna P Kristjánsdóttir, 10.4.2008 kl. 11:12
Ég er eins og þú.... ég er alltaf að setja inn myndir að strákunum mínum(kisunum) held að ég seti miklu oftar inn myndir af þeim heldur en mínum eigin börnum. Ótrúlegt....
Linda litla, 10.4.2008 kl. 12:11
Elsku Ragga, hjartanlega til hamingju með soninn. Þú ert alveg ferlega rík, átt yndislega falleg börn, barnabarn og öll dýrin líka. Eigðu yndislegan dagKær kveðja Ingunn
Ingunn Jóna Gísladóttir, 10.4.2008 kl. 12:26
Til hamingju með drenginn þinn Núna þarf hann ekkert lengur að bera hlutina undir mömmu og svona....hmmm.....jú, hættir maður því nokkurn tíma?
Mér brá dálítið....er hann Ragnar sonur þinn?! Við vorum saman á námskeiði hjá Casting fyrir um áratug....Hann sýndi ótvíræða hæfileika þá! Gaman að þessu Eigðu góðan dag í þessu yndislega veðri
Kveðja, Arna
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 14:06
Takk takk takk stelpur
María Anna, já Himnafaðirinn hefur sannarlega gert vel.
Linda, maður setur inn einhverjar fyndnar sögur eða djúpar pælingar. Ég var ekkert að spá í samhenginu í þessu fyrr en einhver spurði mig hvar mannfólkið mitt væri
Ingunn, já mér finnst ég þvílíkt rík og lánsöm.
Guðrún Arna, afmælisbarnið gat allavega ákveðið að vilja ekki mynd af sér á bloggið sko Fyndið hvað þetta er lítil þjóð, þekkirðu Ragnar? haha auðvitað.
Takk kæru bloggvinkonur, þið eruð yndislegar
Ragnhildur Jónsdóttir, 10.4.2008 kl. 14:21
Takk fyrir þessar yndislegu myndir Ragnhildur mín. Þú er rík, eins og ég.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.4.2008 kl. 14:41
Já Ásthildur það erum við svo sannarlega
Ragnhildur Jónsdóttir, 10.4.2008 kl. 14:50
Til hamingju með alla þína stóru fjölskyldu, tvífætta sem fjórfætta
Þú ert rík kona!
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 11.4.2008 kl. 13:32
Innilega til hamingju með strákinn þinn!
Þegar ég sé fallegar myndir ykkar fjölskyludunnar, smitast gleði til mín líka.
Takk fyrir þetta !!
Toshiki Toma, 12.4.2008 kl. 17:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.