24.2.2008 | 14:53
Horft á sjónvarpið
Mér finnst frábært hvernig Rúv gerði mikið úr Evróvision þennan veturinn. Margir skemmtiþættir og fullt af frambærilegum og skemmtilegum lögum og atriðum sem hafa komið fram.
Allir að horfa á sjónvarpið
Lögin sem eiga það inni, lifa áfram þó að aðeins eitt komist til Serbíu. Auðvitað höfum við ýmsar skoðanir á því hvað "á að vinna" og hvað "á alls ekki að vinna". En það gerir þetta bara skemmtilegra.
Svo fannst mér Spaugstofan alveg frábær líka. Mér finnst þeir bestir þegar þeir syngja skondna texta, eins og t.d. Júrovision textana sína í gegnum árin
Gott sjónvarpskvöld, svona fyrir minn smekk allavega og svo er svo ágætt að sauma með svona dagskrá
Athugasemdir
Almáttugur hvað þetta er falleg mynd. Ég er sammála þér með spaugstofuna, við hjónin höfðum einmitt orð á því að lagið þeirra, Eurovisijon lag hefði nú átt að fá að fara svona einu sinni. Kærleikur til þín elsku Ragga og njóttu dagsins.
Ásdís Sigurðardóttir, 24.2.2008 kl. 15:05
Gat nú lítið horft á sjónvarpið, þar sem ég var að vinna, hefði sennilega setið í horninu mínu með handavinnuna
Alveg frábær mynd hjá þér!
Til hamingju með daginn!
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 24.2.2008 kl. 15:15
Þessi mynd er algjör snilld, hvað eru þau eiginlega að horfa á ??
Ég sá hvorki júróið né spaugstofuna, geri eitthvað lítið af því að horfa á sjónvarp, kannski ætti ég að horfa á spaugstofuna eins og einu sinni og kanna hvort að þeir hafi eitthvað skánað.
Linda litla, 25.2.2008 kl. 00:14
Ragga mín, æðisleg mynd af dýrunum þínum. Ég er bara sátt við júróvisión bandið, flott lag hjá þeim. Vona að þú hafir átt yndislegan dag, til hamingju, kær kveðja Ingunn
Ingunn Jóna Gísladóttir, 25.2.2008 kl. 00:27
Krúttleg mynd,ég var mjög ánægð með sjónvarpið á laugardagsvöld,spaugstofan var góð með upprifjun sína,síðan vann besta lagið það trompar allt.
María Anna P Kristjánsdóttir, 25.2.2008 kl. 10:18
Þakka ykkur öllum fyrir myndahrósið stelpur mínar Það er svo gaman að taka myndir af þessum krúttum. Það bara hreinlega liggja myndefnin fyrir hunda og mannafótum á þessum bæ
Knús á Vellina, Selfoss, Grafarholtið, Reykjavík, Bolungarvík ... og Linda, hvar áttu aftur heima? Knús á ykkur allar yndislegar, úr Hafnarfirðinum
Ragnhildur Jónsdóttir, 25.2.2008 kl. 14:30
Yndisleg mynd, og ég er ánægð með úrslitn í Júróvisjón. Fannst þetta lag best ásamt laginu hans Davíðs, In my dreams.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2008 kl. 18:09
Sniðug mynd, eru þau ekki alveg örugglega að horfa á Eurobandið? Það hlýtur að vera, þau eru svo ánægð á svipinn!
Greta Björg Úlfsdóttir, 25.2.2008 kl. 21:56
Ég er í Reykjavík, nánar tiltekið í Breiðholtinu .
Linda litla, 26.2.2008 kl. 01:13
Ji hvað þau eru dásamleg þarna á myndinni
Mér fannst gaman að fylgjast með Eurovision á laugardaginn. Reyndar fannst mér lagið með Ragnheiði Gröndal langbest og hefði viljað sjá það vinna. Lagið sem vann höfðar líklega til breiðari hóps. Ágætis lag í sjálfu sér ef maður nennir að hlusta nógu oft á það til þess að læra að fíla það....
Knús á alla fætlinga!
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 22:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.