28.10.2007 | 15:21
"Ein" í garðinum ...
Yndislegt gluggaveður! Sólargeislarnir læðast inn um gluggann, kitla mig í nefið og kalla mig út að leika. Auðvitað hlýði ég því, klæðist þykkri peysu og ullargrifflum og fer út í garð með myndavélina. Fyrst rakst ég á ástfangin "gömul hjón"
Þau voru svo falleg, ein eftir á greininni en héldu fast og létu ekki vindasama daga og úrhelli úr öllum áttum hafa áhrif á sig. Þau brostu bara og þökkuðu Guði fyrir sólargeislana sem loksins létu sjá sig.
Ég var auðvitað ekki lengi ein með myndavélina, fékk dygga aðstoð ferfættu barnanna minna. Þau þurfa alltaf að reyna að sjá hvað ég er að sjá.
Þau eru svo frábær félagsskapur og "knúsauðugur" Svo eru þau líka mjög dugleg að spjalla og segja manni sögur úr hverfinu af hinum ferfætlingunum og grænu álfunum í Hellisgerði. Alltaf eitthvað um að tala á þeim bænum.
Eitt hefur hún Edda mín litla samt ekki viljað segja mér og það er hvort von sé á barnabörnum á heimilið hmmm Ég nefnilega sá til hennar og ekki eins, heldur tveggja "góðvina" hennar um daginn. Mér sýnist hún eitthvað farin að þykkna um miðjuna en hún benti mér nú bara pent á að líta í spegil Og svo pússar hún bara geislabauginn sinn og segir ekki meir um það ...!
Hún hætti samt ekki að tjá sig um önnur mál. Já, maður ætti kannski að hlusta betur á hana Eddu litlu, hún geymir ýmsa visku þó ekki sé hún margra vetra. Við gengum saman um garðinn og Edda litla hafði ýmislegt til málanna að leggja, til dæmis benti hún mér á að....
... það væri ekki nóg að hafa engil sem vökvar rósirnar, ef maður leyfir honum að vökva arfann með!
Einum of stórt vit fyrir lítinn kött! ... var þetta rósin í mér eða arfinn sem talaði núna?
Athugasemdir
Skemmtileg saga. Það er kominn nýr og fallegur Dagur.
Júlíus Valsson, 28.10.2007 kl. 18:07
Þakka þér fyrir Júlíus.
Ragnhildur Jónsdóttir, 29.10.2007 kl. 00:31
Falleg frásögn,það hlýtur að vera spennandi að verða aftur einhverskonar amma.
María Anna P Kristjánsdóttir, 29.10.2007 kl. 11:19
Æ, já María, allt ungviði er yndislegt og ég hlakka bara til að fá einn skammt af kettlingum Það er svo mikið undur að fá að fylgjast með því kraftaverki þegar nýtt líf þróast, fæðist og vex upp. Sama hvort það er dýr eða planta, mér finnst alltaf jafn mikið óendanlegt undur að hugsa um hvernig einn lítill stundum ósýnilegur "punktur" getur vitað hvað hann á að verða þegar hann verður stór!
Svo verður náttúrulega séstaklega skemmtilegt að fylgjast með stærsta undrinu, dótturdóttur minni þegar hún fær að fylgjast með kettlingunum.
Júlíus: Lalli varð á undan mér, þessi hæka þín varð að miklum pælingum á heimilinu í gærkveldi mjög skemmtilegt. Ég vissi að þetta með nýjan og fallegan Dag væri lykillinn en að ég skyldi ekki fatta strax, næstum ófyrirgefanlegt sko, nema ég noti þá afsökun að hafi verið orðin svo syfjuð .....
Og nú út að taka snjómyndir...!
Ragnhildur Jónsdóttir, 29.10.2007 kl. 11:34
Hæ elskan mín. Yndisleg færsla og fallegar myndir. Góð líka færslan hér á undan.
Ásdís Sigurðardóttir, 29.10.2007 kl. 18:14
Hæ,hæ Ragga, þetta er falleg færsla og frábærar myndir, sé að þú hefur notið fallega veðursins og farið út með myndavélina um helgina. Ég var hins vegar föst alla helgina inni á Haukahæusinu við Strandgötuna á handbolta móti með syninum og tók því bara myndir innan dyra
Kveðja
Ingunn Fjöryrki
Ingunn Jóna Gísladóttir, 29.10.2007 kl. 18:29
Æ hvað þið eruð yndislegar stelpur. Takk takk
Sjáumst við ekki allar fljótlega?,... you know....
bestu kveðjur
Ragga fjöryrki
Ragnhildur Jónsdóttir, 29.10.2007 kl. 22:56
Ragga, auðvita sjáumst við hressar fljótlega, hlakka til að hitta ykkur allar. Kveðja Ingunn fjöryrki
Ingunn Jóna Gísladóttir, 29.10.2007 kl. 23:00
Sæl Ragga. Falleg og skemmtileg saga hjá þér, kisur eru svo yndisleg dýr, þær eru líka svo bráðgáfaðar þessar elskur. Ég elska kisur og líka hunda reyndar, ég á einn hund núna, hef líka átt nokkrar dásamlegar kisur.
Kveðja til þín og kisulóranna þinna.
hofy sig, 29.10.2007 kl. 23:09
Sjáumst á fimmtudaginn!
Greta Björg Úlfsdóttir, 30.10.2007 kl. 16:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.