4.3.2008 | 09:35
Undarlegir atburðir á heimilinu...
Það hefur fjölgað verulega í heimili hjá okkur síðastliðin ár. Og meiri og meiri tími hefur farið í þrif. Ég ákvað því að tímí minn væri það mikilvægur til að gera eitthvað skemmtilegt, að við þyrftum aðstoð til að sjá um öll leiðinlegu störfin.
Það var ekkert mál, aðstoðarstúlkan verður samt alltaf hálf-sækó þegar hún byrjar...
Ekki svo að skilja að henni sé þrælað út. Hún fær auðvitað að hvíla sig þegar hún hefur lokið sínu verki.
Til að vera viss um gæði verksins, ákváðum við að prinsessan á heimilinu fengi það starf að fylgjast með að allt væri nú nógu vel gert.
Hún tók auðvitað starfinu mjög alvarlega og fylgdist afar vel með...
en greinilega ekki nógu vel því....
Eitthvað var ekki alveg nógu mikil athygli í gangi... en það komst upp um þennan þjófnað en ekki er öll sagan búin enn, því...
... þessi sást læðast um undir eldhússkápnum...
Næst verðum við að ráða einkaspæjara...
Athugasemdir
Hahaha skemmtileg myndasaga Ragnhildur mín, og auðvitað verður að fá botn í þetta undarlega mál, svo það verður að ráða einkaspæjara til að ganga úr skugga um hvað er raunverulega að gerast á þessu heimili
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.3.2008 kl. 09:52
Ragga mín þú ert heppinn að hafa svona duglegan skúringarhund. Augun í prinsessunni eru dáleiðandi Frábærar myndir hjá þér, svo skemmtilegar. Eigðu yndislegan dag, kær kveðja Ingunn
Ingunn Jóna Gísladóttir, 4.3.2008 kl. 13:44
ha ha ha guð hvað ég hló þegar ég var að skoða færsluna.
Linda litla, 4.3.2008 kl. 14:03
Yndisleg færsla, Ragnhildur mín, vona að komist botn í hvað er í gangi á heimilinu
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 4.3.2008 kl. 16:23
Ótrúlega skemmtilegar myndir,en þú ert með þrjár mjög góðar hjálparhellur í þrifin,en hvort þau gera eitthvert gagn það er spurning.
María Anna P Kristjánsdóttir, 4.3.2008 kl. 17:57
yndislegar myndir
Ásdís Sigurðardóttir, 4.3.2008 kl. 19:42
hæhæ fyndin saga og krúttleg eins gott að "einkaspæjarinn"sem þið fáið ykkur sé góðuren hvað heitir hundurinn aftur??hlakka til að fara til flórída
biðjum að heilsa öllum á heimilinu og líka einkaspæjaranum sjáumst fljótlega hlökkum til að hitta ykkur næst
kv.**Elísa og Arnór**
Elísa og addi paddi (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 21:30
Ha, ha, ha, þetta er alveg drepfyndin myndasería hjá þér...
Greta Björg Úlfsdóttir, 4.3.2008 kl. 21:54
þetta átti ekki að vera addi paddi ég var ekkert smá hneykslaður!!!
kv.Arnór cool
arnór cool (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 21:55
Já, það er sko ýmis ævintýrin í gangi á þessu heimili. Maður veit aldrei hvað gerist næst Ég get hlegið endalaust að þessum litlu snillingum.
Elísa og Arnór ...cool..., uppáhalds tvíburafrænks og frænds Hvolpurinn heitir Dúfa
Takk öllsömul fyrir skemmtileg og notaleg komment. Sjáumst
Ragnhildur Jónsdóttir, 4.3.2008 kl. 22:10
Hahahaha...........fyndin myndasería hjá þér. Ætli ég geti kennt Tomma og blíðu að skúra fyrir mig????......hm...................
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 8.3.2008 kl. 21:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.