17.1.2008 | 20:58
Í dag sá ég ljósið...
Loksins loksins er ég komin með myndavélina mína aftur úr viðgerð!! oh þvílíkur sæludagur! Nú get ég hellt yfir ykkur myndum aftur en verð samt að nota lánstölvu enn um sinn. Allt hefur víst sinn tíma.
Þetta er samt mikilvægur dagur því...
í dag fann ég ljósið....
Ég komst út með myndavélina mína elskuðu í fyrsta skipti í langan tíma. Mér leið svo vel eftir góðan göngutúr og fullt af myndum, fötin mín öll í snjó eins og þegar ég var lítil að leika í Hellisgerði. Vettlingarnir settir á ofninn og ullarlyktin fyllti loftið, þurr föt, kaffi í bollann, hundur á kaldar táslurnar og kisa í fangið .... Mmmm sæla......
Athugasemdir
Geggjuð mynd, eins og þínar myndir eru reyndar allar, en hvað er þetta rauða upp í trénu? Þetta er eins og epli, kanski bara farin að vaxa epli á trjánum í Hafnafirðinum, mér finnst þetta alla vega soldið duló.
hofy sig, 17.1.2008 kl. 21:38
Þakka þér fyrir Hófý Já, þetta rauða, ég var einmitt að velta þessu fyrir mér, ... það væri örugglega hægt að búa til heilt "költ" úr þessu sko. Annars er Hellisgerði svo duló að það kemur ýmislegt til greina ....
Ragnhildur Jónsdóttir, 17.1.2008 kl. 21:52
Æðisleg mynd, þetta rauða er bara svona fallegt ljósbrot er það ekki?? kveðja í fjörðinn fríða.
Ásdís Sigurðardóttir, 17.1.2008 kl. 22:19
Ég skil þig svo vel Ragga, ég var einmitt að gefast upp á mínu myndavélaleysi svo ég keypti mér bara nýja myndavél í dag.
OG HANA NÚ !
Linda litla, 17.1.2008 kl. 22:26
Falleg mynd Ragga, hvað skildi þetta rauða vera í trénu, það þætti mér gaman að vita Það skildu þó ekki vera litlar verur á sveimi í Hellisgerði ?Gaman að þú skulir vera farin að blogga aftur Kveðja úr sveitinni.
Bergþóra Andrésdóttir (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 20:33
Oooo, ég alveg finn blautu ullarlyktina og finn hlýjuna frá dýrunum. Guð hvað þetta hefur verið kósí kaffistund. Dásamlegt. Hafðu það sem allra best vinkona. Vonandi sjáumst við nú fyrr en seinna.
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 00:10
Þakka ykkur fyrir stelpur. Já, Ásdís þetta er náttúrulega "bara" svona fallegt ljósbrot en það er visst duló í ljósbroti líka. Allar hinar hugmyndirnar eru líka kannski skemmtilegri ? allavega ævintýralegri, sérstaklega í Hellisgerði sem er þekkt fyrir slík skemmtilegheit.
Já nú fara tækin að komast í lag; myndavélin komin og ég kemst í eina lánstölvu þar sem ég get pínulítið unnið með þær en þarf að læra betur á systemið. Svo fæ ég vonandi innvolsið úr gömlu tölvunni minni í vikunni.
Ætli sé ekki kominn tími og tækifæri á að blogga soldið, geri það örugglega á næstu dögum. Bless á meðan
Ragnhildur Jónsdóttir, 20.1.2008 kl. 09:40
Flott mynd hjá þér.
Innlitskvitt á þig.
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 20.1.2008 kl. 11:21
Elsku Ragga, ég var virkilega farinn að sakna myndanna þinna, frábært að vita að þú ert komin með vélina aftur, þessi mynd er æðisleg. Ég er að fara yfir um á að komast ekki út að rölta um og taka myndir, hnéið ekki nógu gott til þess ennþá. Eigðu yndislegan dag, kær kveðja Ingunn
Ingunn Jóna Gísladóttir, 21.1.2008 kl. 13:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.