24.10.2007 | 16:37
Rigning og krútt
Það rignir enn og blæs, þetta er eiginlega alversta veður fyrir svona skrokk eins og minn. En það þýðir ekki að tuða, enginn nennir að hlusta á það. Svo ég sit og sauma, það er alveg frábært að hafa svona skemmtilegt að dunda við. Er að sauma haustlita Hellisgerði með frjálsri aðferð, semsagt, ýmsar tegundir af garni og sporum og hugmyndaflugið látið ráða. Rosa skemmtilegt!
Dótturdóttir mín, eins árs, leikur sér á gólfinu og talar og talar við bangsa og kubba og les upp úr bókum.... það skilur náttúrulega enginn hvað hún segir .... nema þetta sé sérstakt bangsamál, hmmm það gæti auðvitað vel verið. Hún er allavega alveg krúttust
Svo minni ég á undirskriftalistann, þar sem skrifum undir að við styðjum það að öryrkjar fái að lifa mannsæmandi líf (við erum ekkert að biðja um meira sko) Ýtið HÉR
Athugasemdir
Algjör krúttudúlla!
Vonandi fær maður að sjá Hellisgerðis-haustlitasinfóníuna þína þegar hún verður búin, eða kannski fær maður að fylgjast með ferlinu, þó ekki væri nema á ljósmynd...?
Greta Björg Úlfsdóttir, 24.10.2007 kl. 17:53
ömmustelpan er algjör krúttdúlla eins og Gréta segir. Kveðja María
María Anna P Kristjánsdóttir, 24.10.2007 kl. 21:13
jeminn krúttið!! Ég segi nú bara gútsí gútsí .....
Guðrún frænks (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 23:29
Já, Gréta, María og Guðrún, hún litla Sólin mín er sko krúttasta krúttidúllan (sagði stolta amman ...)
Gréta, það er spurning með "sinfóníuna" hmmmm pæli í því.
heyrumst á morgun með kaffið
Ragnhildur Jónsdóttir, 25.10.2007 kl. 00:51
Sæl Ragga, Sólin þín er algert krútt, þvílík augu, maður sekkur í þau. Kveðja Ingunn Fjöryrki
Ingunn Jóna Gísladóttir, 25.10.2007 kl. 00:53
Einmitt Ingunn, augun hennar halda manni alveg og segja svo margt. EInhver djúp viska þarna undir sem við eigum eftir að fá að njóta þegar bangsamálið hennar verður mannamál
Æ, ég veit það, ég er bara montin amma hahah og það er allt í lagi
bestu fjöryrkjakveðjur Ingunn
Ragga
Ragnhildur Jónsdóttir, 25.10.2007 kl. 00:58
Yndisleg barn. Það væri gaman að sjá útsaumaða mynd af Hellisgerði. Kveðja.
Ásdís Sigurðardóttir, 25.10.2007 kl. 01:03
Þakka þér fyrir Ásdís, já það getur vel verið að maður skelli inn mynd af myndinni. Það kannski heldur mér þá við efnið að klára hana
fjöryrkjakveðjur
Ragnhildur Jónsdóttir, 25.10.2007 kl. 01:24
Ragga mín viltu hringja í mig þegar þú getur heimas:4824262 og gsm 8658698
Ásdís Sigurðardóttir, 25.10.2007 kl. 13:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.