13.9.2007 | 18:45
2 kafli Hvað er á bakvið?
Alex hefðarkisa sá bloggfærsluna mína í gær og ákvað að fara í rannsóknarleiðangur í Hellisgerði. Henni fannst hún þurfa að vita leyndarmálið. Það er eitthvað hulið, eitthvað sem við sjáum ekki við fyrstu sýn.
Hvað er inní og hvað er á bakvið eða jafnvel handanvið....
Fljótlega slógust fleiri í hópinn
Edda litla vildi líka vita um leyndarmálið .....
og Albus Dumbledore....
Oh Albus! alltaf sami grallarinn!
Þarna ganga þau; Albus fremstur (auðvitað), og svo Edda litla og að síðustu Alex hefðarkisa. En þau heyrðu eitthvað hljóð...... var einhver á eftir þeim?
Nei þetta var nú bara flugan að sinna sínu starfi. Hún hafði nefnilega fundið svo gott nammi inní blóminu. Hún skellti nú samt á þau kveðju svona í leiðinni en hélt svo áfram bsssss.... bsssssss.....
Edda litla ákvað að skoða vel inn undir runnann, kannski er eitthvað leyndó þar. Hún sá falleg blóm, rauð og hvít og svo sá hún ánamaðk sem smeygði sér hratt ofaní moldina....
Alex fór uppá klett og horfði vel yfir svæðið. Þannig sér maður kannski hvar aðalleyndarmálið er. Hvað sér Alex? Finna þau leyndarmálið?
Framhald á morgun.....
Athugasemdir
Kettir eru mjög næmir á þetta á bakvið, inní og handanvið...
Greta Björg Úlfsdóttir, 13.9.2007 kl. 19:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.