13.4.2007 | 11:21
Sterk forysta Íslandshreyfingarinnar
Frábær forysta Íslandshreyfingarinnar með Ómar og Margréti fremst í flokki, og Ósk, Jakob Frímann og nú nýjasta andlitið Ásta Þorleifsdóttir sýnir hversu öflugur þessi flokkur er.
Ásta sýndi svo um munaði hvernig á að koma fram í pólitískri umræðu, í tveimur sjónvarpsþáttum frá Selfossi nýlega. Skýr og uppbyggileg í málflutningi, brosandi og jákvæð og ljómaði innanum gömlu gráu reynsluboltana sem óneitanlega féllu í skuggann.
Íslandshreyfinging samanstendur af sterku, dugmiklu og jákvæðu fólki. Jákvætt gagnvart náttúrunni, öllu fólki og þar með öllu lífi. Við viljum lifa áfram í góðu landi þar sem við getum notið lífsins án þess að eyðileggja um leið möguleika barna okkar og barnabarna að gera slíkt hið sama.
Við viljum Íslandshreyfinguna á Alþingi og þessvegna kjósum við Í. Við látum ekki hræða okkur til að kjósa eitthvað annað.
Stefnuskrá Íslandshreyfingarinnar er á heimasíðunni: www.islandshreyfingin.is
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.