Að vera 75% öryrki

Ég ákvað að setja þessa færslu aftur efst, svona fyrir þá sem halda að það sé æðislegt að vera öryrki...:

 

12.10.2007 | 13:30

Að vera 75% öryrki í "velferðarsamfélaginu"

Já, nú er tími "skemmtilegheitanna", bréfið frá Tryggingastofnun komið inn um lúguna ... með dóminn. Ég slepp sennilega vel miðað við marga, ætli það sé ekki vegna þess að eiginmaðurinn fékk ekki meiri kauphækkun en raun ber vitni, síðastliðið ár. Samt fékk ég rukkun um 43.975,- sem er tveir þriðju af því sem ég fæ mánaðarlega í bætur sem 75% öryrki. Fyrir þá sem halda að líf og dund heimafyrir hjá öryrkjum sé eftirsóknarvert sældarlíf, lesið tölvupóstinn sem ég fékk frá vinkonu minni í morgun:

Að vera 75% öryrki í "velferðarþjóðfélagi"

Í gær fékk ég (ásamt hundruðum annarra)  áfall sem dugir mér til alvarlegra áhyggja það sem eftir er ársins.. og gott betur! Til að bæta enn um hef ég engar lífeyrissjóðsgreiðslur.

Endurkrafa frá TR um 103.013 krónur, en þessi upphæð samsvarar uþb þreföldum útborguðum mánaðargreiðslum mínum. Fyrir mér er þetta enn einn dómur samfélagsins yfir mér sem öryrkja.
1.     Þegar ég varð öryrki hrundi fjárhagsgrundvöllur fjölskyldunnar.
2.     Þegar ég varð öryrki missti ég sjálfstæði mitt (bótagreiðslur mínar  háðar launum hans!)
3.     Þegar ég varð öryrki áttum sumarbústað sem við urðum að selja. - Við fengum háan skatt þarsem hann hafði hækkað í verði á 22 árum og bæturnar lækkuðu enn. Það varð lítið eftir af "hagnaðinum" til að lifa af.
4.     Ég varð að fara að vinna svolítið aftur til að mæta kostnaði (hafði reyndar gaman af því) - en við það lækkuðu bætur mínar enn.
5.     Af þessum sökum hef ég  reynt að taka eins mikið af verkefnum og ég mögulega treysti mér til (sem bitnar oft illa á heilsunni) og nú sit ég uppi með þessa skuld. Ég á að borga endurgreiðslu rúm 103 þúsund sem er stórfé fyrir mig og heilsan versnar í samræmi við aukna vinnukröfu.

Hvað á ég að gera?
A)     Vinna meira? - það er því miður ekki hægt, ég GET EKKI unnið meira
B)     Greiða þetta af skertum bótum? - Mundir þú geta gert það? - ef svo er þá býrð þú við önnur lífsskilyrði en ég. Ég óska þér til hamingju með það og vona að heilsan endist þér.
 
Ég er búin að gefast upp- ég get ekki meir. Því meira sem ég vinn þess verr líður mér og þess harðari eru kröfurnar sem samfélagið sýnir mér. - er þetta leiðin til að "koma öryrkjum út í atvinnulífið" ?
                         
Bréfið er sent öllum þingmönnum Íslands, Öryrkjabandalagi Íslands og öllum þeim sem mér dettur í hug héreftir

Ps- það stóð í bréfinu frá TR að mér væri "velkomið að endurgreiða ofgreiðsluna strax" - TAKK KÆRLEGA! - ég byrja strax að spara!

 

Hvað finnst ykkur um svona meðferð? Og það er ekki eins og þessi vinkona mín sé ein um þetta, nei, hún bara getur skrifað og þess vegna heyrist í henni en ekki hinum sem fara á hausinn þegjandi og hljóðalaust heima hjá sér....

Munið að skrifa undir áskorun til stjórnvalda um leiðréttingu hér

 (það komu nokkur komment þegar ég setti þetta inn síðast, færslan og kommentin eru hér neðar á síðunni)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Gott hjá þér.

María Anna P Kristjánsdóttir, 18.10.2007 kl. 13:38

2 Smámynd: Fríða Eyland

Baráttukveðja

Fríða Eyland, 18.10.2007 kl. 18:10

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Við berjumst áfram öll saman. 

Ásdís Sigurðardóttir, 18.10.2007 kl. 21:37

4 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Já, við höldum ákveðið áfram. Saman erum við miklu sterkari

Hafið það sem allra best elskurnar

Ragnhildur Jónsdóttir, 18.10.2007 kl. 23:56

5 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Þetta eru bara staðreyndir sem allir lífeyrisþegar lifa við, ég lenti í því sama, fasteignamatið á íbúðinni hækkaði hjá mér um 5 milljónir fyrir 2 árum, vá ég er svo rík og þar af leiðandi missti ég allar vaxtabæturnar, þær væru í dag rúmar 200.000 og svo skulda ég TR eins og margir lífeyrisþegar, svo er lífeyrissjóðurinn að lækka greiðslurnar hjá mér um 24.500 á mánuði. Þannig að heildar lækkun hjá mér þ.e.a.s vaxtabætur og frá lífeyrissjóði verða um 500.000 kr á ári

Ingunn Jóna Gísladóttir, 19.10.2007 kl. 00:29

6 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Það ættu allir að sjá hversu fáránlegt þetta allt saman er. Ég skil ekki af hverju er ekki búið að laga þetta óréttlæti. Ég þarf að greiða til baka ca. 43.000,- mig munar um það en margir eiga að borga miklu meira, eins og þú Ingunn.

Ég bað manninn minn vinsamlegast um að afþakka allar hugsanlegar kauphækkanir hjá sér, þar til væri búið að laga þetta. Fáránlegt! 

Ragnhildur Jónsdóttir, 19.10.2007 kl. 00:36

7 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Sæl Ragnhildur og takk fyrir að samþykkja mig sem bloggvin, baráttan er rétt að byrja og auðvitað stöndum við saman þ.e.a.s fjöryrkjar

Æðislegar náttúru myndirnar hjá þér 

Ingunn Jóna Gísladóttir, 19.10.2007 kl. 01:06

8 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Takk Ingunn, í sambandi við myndirnar mínar. Náttúran er mín sáluhjálp (fyrir utan fjölskylduna you know). 

Jebb og áfram með baráttuna

Ragnhildur Jónsdóttir, 19.10.2007 kl. 10:45

9 identicon

Ég fékk reikning upp á 750.000,- frá TR vegna eingreiðslu frá lífeyrissjóðnum mínum.  Þar sem reiknað er út frá brúttótekjum, skulda ég stofnuninni mun meira en ég fékk í vasann frá lífeyrissjóðnum, sem fór nota bene beint inn á höfuðstól lánsins sem ég þurfti að taka meðan ég var ekki að fá reglulegar greiðslur.

Svona nokkuð getur bugað mann.  Því meira sem ég reyni að vinna, því meira lendi ég í mínus hjá TR.  Ég er föst.

Hvar er Jóhanna með loforðin sín?  Hennar tími kom, hvað með okkar? 

Elísa (IP-tala skráð) 26.10.2007 kl. 01:13

10 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Sæl Elísa, ég vona að þú kíkir hérna inn aftur. Ertu til í að segja mér söguna þína? Mér þætti vænt um að heyra hana, þú þarft ekkert að hafa hana undir nafni frekar en þú vilt. Vinsamlegast sendu mér mail á ragjo@internet.is eða hringdu í mig í síma 694-3153  því fyrr því betra.  Svona ástand eins og þú lendir í ætti ekki að vera til, það þarf að gera eitthvað í þessu og það strax. 

Elísa okkar tími er kominn! við fjöryrkjar ætlum ekki að hætta fyrr en við fáum leiðréttingu á okkar málum.

bestu kveðjur

Ragga fjöryrki 

Ragnhildur Jónsdóttir, 26.10.2007 kl. 11:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband