Fjöryrkjahittingur

Jæja, þá er yndislegur dagur að kveldi kominn. Í dag hitti ég fjöryrkjana frábæru í fyrsta skipti Smile Kannski mætti kalla okkur "Hinar fimm fræknu" LoL Við kynntumst í gegnum bloggið og svo hittumst við hjá Heiðu í Hveragerði í dag. Það var eins og við hefðum alltaf þekkst. Alveg dásamlegar konur Joyful

Þegar leið á daginn og sólin fór að setjast beint fyrir framan stofugluggann þá þutum við Ingunn út með myndavélarnar. 

Sólarlag í Hveragerði 1000

Sólarlag í Hveragerði 2 588

Bendi ykkur á að kíkja á frábæru myndirnar hennar Ingunnar á blogginu hennar Cool

Og svo mynd af þeim fjórum fjöryrkjunum á kafi í undirskriftalistanum. Það þarf alltaf að fara yfir svona lista til að athuga að nöfnin séu í alvöru nöfn og svoleiðis LoL

Fjöryrkjar 1000

Ingunn, Heiða Björk, Ásdís og Arna, ég Ragga er svo á bakvið myndavélina sko Wink

Takk stelpur fyrir yndislegan dag og Heiða Björk innilegar hamingjuóskir með nýja dásamlega heimilið ykkar. Joyful  Knús og kveðjur elskurnar, sjáumst fljótlega aftur Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Elsku Ragga, fallegar myndirnar hjá þér, þú tókst mynd af okkur með öllu namminu takk fyrir yndislegan dag, sjáumst fljótlega. Kveðja Ingunn Fjöryrki

Ingunn Jóna Gísladóttir, 20.11.2007 kl. 23:24

2 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Já Ingunn nú getum við ekkert logið nammið af okkur

Ragnhildur Jónsdóttir, 20.11.2007 kl. 23:33

3 identicon

Sæl aftur!

Langar til að benda þér á skemmtilegt blogg! blog.central.is/svafa

Svafa var nú  í leikfélaginu, þú mannst ábyggilega eftir henni. Hún er snilldar penni og afar skemmtileg. Ef þig langar að gráta, brosa eða jafnvel hlæja, skalltu kíkja á bloggið hennar.

Kveðja Jóhanna J

Jóhanna J (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 23:54

4 identicon

Ástarþakkir enn og aftur fyrir frábæran dag!  Þetta var alveg magnað. 

Knús í Hafnarfjörðinn,

Arna fjöryrki

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 01:43

5 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Jóhanna, ég kíkti á bloggið hennar Svöfu, ég þarf að skoða betur hjá henni. Ég man auðvitað eftir henni úr leikfélaginu.

Arna, það var alveg frábært að hittast í gær. Við hittumst örugglega fljótlega aftur.

Ragnhildur Jónsdóttir, 21.11.2007 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband