Rigningin er líka góð :-)

Við vorum örugglega flest komin í vorskapið, búið að kjósa, trén að bruma og vorlaukar að blómstra. En þá hellist yfir okkur rigning og rok. En það má ekki gugna, vorið er í fullri vinnslu og það er ýmislegt fagurt og yndislegt í rigningunni Joyful

reynitre_-a_-byrja-vori.jpg

Hið helga tré Íslands; Ilmreynirinn er svo sannarlega í vorhugleiðingum og lætur enga rigningu eða rok stoppa það af. Þessa mynd tók ég áðan af trénu sem mér þykir svo óendanlega vænt um enda alin upp með þetta tré í garðinum. Þetta tré er í rauninni heil fjölskylda af trjám sem vaxa þétt saman og fylla bakgarðinn minn Heart

magni-a_-sko_a-vori.jpg

Magni minn litli Víkingakisi fór með mér út að athuga vorið og gróðurinn. Honum fannst full blautt fyrir sig úti (ekki segja honum en hann soldið pjattaður) Joyful

magni-sefur-svo-saett.jpg

Efti mikinn þvott og þurrk fann hann hinn fullkomna stað og lagði sig á peysunni minni við hlið mér í sófanum Sleeping Yndislega krúttið Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Við þurfum auðvitað rigninguna líka. Ég nýtti mér vel rigninguna í gær, fór í langan og hressandi "blautan" göngutúr og dreif mig svo í að klára verkefni sem mér leiðist alveg svakalega að gera og hafði notað allt til að humma það fram af mér  Ég vonast samt til að fara að fá meiri sól og hita  

Knús á ykkur og krúttdýrin

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 30.4.2009 kl. 10:39

2 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Þú ert nú svo dugleg Sigrún, ég er soddan blómálfur ég held mig bara inni ef ég mögulega get í svona veðri

Knús á ykkur Grindjánana

Ragnhildur Jónsdóttir, 2.5.2009 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband