Kettlingar og vetrarbirta

Þetta er nú búið að vera meira krúttustuðið undanfarið. Fimm dásamlegir kettlingar en nú eru bara tveir eftir og annar þeirra fer á föstudaginn. Einn eftir ef einhvern vantar kisustrák ennþá Smile

 

Upp�haldsleiksv��i�
Þetta hefur verið uppáhaldsleiksvæðið undanfarna daga.

 

Algjörar dúllur. Við eigum eftir að sakna þeirra en samt er frábært að þrír þeirra fóru á heimili þar sem við eigum eftir að frétta af þeim. Meira að segja einkabarnið Englabangsinn hennar Emblu, fór til ömmu hennar og afa á nesinu. Svo að Embla Sól getur knúsað hann reglulega Smile

 

Hva�-er-�etta-me�-ketti-og-
Hvað er þetta með ketti og handavinnu?

 

En það er víst fleira til en kettlingar, sagði mér einhver Tounge Í dag þegar ég rölti eftir barnabarninu henni Emblu Sól til dagmömmunnar, tók ég myndavélina með. Veðrið er alveg dásamlegt til myndatöku!

 

Fr�kirkjan-og-Hellisger�i
Þarna sést í Fríkirkjuna í Hafnarfirði "í gegnum Hellisgerði"
 
Snj�r-og-tr�-Hellisger�i
 
Bara falleg birta. Finnst ykkur svona dagar ekki dásamlegir?!Joyful
Hellisger�i-lj�s-vi�-grenit
 
Alltaf eitthvað duló í Hellisgerði. Hvað er þarna á bakvið? Inní? undir? Alltaf eitthvað hinumegin Sideways
Vona að þið eigið yndislegan dag Joyful

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æðislegar myndir. Man árin mín í Hafnarfirði, þau voru góð. Gaman að heyra að kisulingar eru að fá góð heimili, þau eiga eftir að gleðja marga lengi.  Kær kveðja til þín vina mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.1.2008 kl. 23:57

2 Smámynd: halkatla

elskurnar litlu, við hugsum til þeirra héðan og það var gaman að öllum myndunum af þeim

halkatla, 31.1.2008 kl. 00:10

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að dúllurnar fá góð heimili.  Flottar myndir.  Hellisgerði er rosalega gaman að koma og skoða, margt óvenjulegra plantna þar, og svo náttúrlega Smáplöntusafnið yfir sumarið, Bonsai.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.1.2008 kl. 14:14

4 identicon

Alltaf jafn sætir kettlingarnir   Gott hjá þér að grípa vetraraugnablikið á myndum.  Takk fyrir að deila með okkur  Ragga mín.

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 22:40

5 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Elsku Ragga, æðislegar myndir hjá þér eins og alltaf. Hellisgerðið er svo fallegur staður. Kettlingarnir eru allir svo mikið krútt, ég á eftir að sakna krúttmyndana af þeim. Eigðu æðislegan dag, kær kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 1.2.2008 kl. 12:20

6 Smámynd: Linda litla

kruttin litlu, flott myndin af þeim a vagninum. annar kötturinn minn sækist rosalega mikið i vagninn hja ömmustraknum hja mer.

Linda litla, 4.2.2008 kl. 09:19

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég elska Hellisgerði, hef heimsótt þann stað síðan ég var barn. Á ekki að vera allt fullt af álfum þar?

Svava frá Strandbergi , 5.2.2008 kl. 17:28

8 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Já, litlu krúttin veita svo sannarlega mikla gleði í vetrarkuldunum.  Og nú eru þau öll komin á góð heimili nema einn sem er eftir hjá okkur (sem er auðvitað líka gott heimili  ) og leikur við hvolpinn minn hana Dúfu daginn út og inn. Ekkert smá krúttulegt

Guðný, það ER fullt af álfum í Hellisgerði  

Ragnhildur Jónsdóttir, 5.2.2008 kl. 19:54

9 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

Ohh hvað þeir eru sætir....ekki það að mig vanti kisu..er með 4 stk..einn er einhvers staðar á flakki og þegar hann finnst aftur verða þeir aftur 5 æi hvað á maður að segja þeir eru svo skemmtilegir

Álfar eru allstaðar en búsetan þeirra er á fáum útvöldum stöðum..eins og Hellisgerði

Ásta Björk Hermannsdóttir, 7.2.2008 kl. 10:44

10 identicon

það fer kannski að vera fært fyrir mig að koma í heimsókn

Guðrún frænks (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 11:30

11 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Já Guðrún frænks, nú fer þetta að verða "heimsóknarfært hús" fyrir kisuofnæma, aðeins fimm kettir núna    

Annars þarf ég nú að fara að kíkja á þig, það er ótrúlegt hvað getur verið langt að fara fimm mínútna keyrslu.....

Ásta Björk, já það eru sko álfar víða en óvíða fleiri og fjölbreyttari en í Hellisgerði  takk fyrir innkikkið og kommentið.

knús og kveðjur allar saman  og takk fyrir innlitið. Ég ætti að fá tölvuna mína í lag eftir helgi, verð þá kannski duglegri að blogga eftir það.

Ragnhildur Jónsdóttir, 8.2.2008 kl. 16:04

12 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Bara að kvitta hér til að ítreka að það er misskilningur hjá þér að ég sé búin að henda þér út af bloggvinalistanum mínum...eins og þú sérð ef þú skoðar síðuna mína aftur, og aftur og aftur og aftur.......

Greta Björg Úlfsdóttir, 8.2.2008 kl. 16:33

13 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Hjúkk Greta!!

Ragnhildur Jónsdóttir, 8.2.2008 kl. 17:11

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Æj hvað þeir eru sætir kettlingarassgötin

Flottar myndir hjá þér! 

Hrönn Sigurðardóttir, 9.2.2008 kl. 22:57

15 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Æðislegar myndirnar þínar, bæði af krúsidúllunum og náttúrunni!!!!

kv. R.Ása 

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 10.2.2008 kl. 00:54

16 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Komdu kisa mín,kló er falleg þín.

Magnús Paul Korntop, 11.2.2008 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband