Vantar þig kettling?

Fyrir ykkur sem eruð að pæla í að fá ykkur kettlingakelikrútt, þá er tíminn núna og hér eru myndir til að velja úr! Svo má sko líka alveg skoða bara til að fá krúttkast í fjarska Joyful

Þeir eru allir vanir hundum og börnum, alveg dásamlegir ljúflingar, fjörkálfar og "tala" hátt þegar  þarf að kalla langar leiðir í mömmu eða Dúfu... Cool

Byrjum á "krútthnútnum" sem ég rakst á í forstofustólnum.  aaaaaaaaahhhhhh...InLove

Kr�tthn�tur

Hvar sem maður gengur um heimilið, mætir maður "krúttum" eða "vesenistum", svona eftir því hvað verið er að fást við hverju sinni. Wink Auðvitað eru allir hraustir kettlingar fjörugir. En þarna voru þeir sko BARA krútt. Joyful

Eftir stutta stund var búið að leggja sig nóg og kettlingafjörið byrjaði. Það er svo gaman að fylgjast með þeim í ham, hlaupa um alveg á fullu eins og ímyndað skrímsli sé á eftir þeim Grin Og svo stoppa þeir og athuga hvar þeir eru eiginlega staddir.....??? Sideways

Hj�lp

Við Dúfa (hvolpurinn) vorum að velta því fyrir okkur hvor þeirra væri skrímslið í þetta sinn. Eða er Krúsa bara að faðma hann Magna svona innilega? Kissing

 

 

 

 

 

 

 

Hér fyrir neðan er Krútta, sem er minnst af systkinunum að bíða eftir Dúfu, þær eru miklar vinkonur og alveg dásamlegt að sjá svona lítinn fínlegan kettling og "brussuhvolp" leika svona skemmtilega saman GrinJoyful 

tilb�in-�-n�sta-stu�

 

 Mjög einbeitt á svip!

ég hefði þurft vídeó fyrir næstu sekúndu þegar þær stukku á hvor aðra og hlupu svo á fullu saman inn í stofu hahaLoL

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Moli-og-Magni-a�-k�raÓtrúlega fallegir bræður InLove

Moli fyrir framan og Magni fyrir aftan. 

 

 

 

 

Kr�ttasta-Kr�tta

Ég var að sýna henni Emblu barnabarninu kettlingamyndir. Þegar hún sá þessa sagði hún: "ÆÆæææææ dútta!" (semsagt: Ææææ Krútta! enda er orðið "krútt" örugglega mest notaða orðið á heimilinu þessa dagana Joyful)

...hafið þið pælt í þessu orði? krútt, krúttikrúttukrútt... skrítið orð Tounge en skemmtilegt Smile

 

Magna�ur

Köttur úti í mýri setti upp á sig stýri og úti er ævintýri. Smile ... í bili sko Wink

mailið mitt er ragjo@internet.is  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

þetta eru svo dásamleg kisukrútt

halkatla, 26.1.2008 kl. 17:35

2 Smámynd: Linda litla

Krúttrúsínurnar..... algjörar dúllur

Linda litla, 26.1.2008 kl. 18:06

3 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Þeir eru rosalega fallegir.

María Anna P Kristjánsdóttir, 27.1.2008 kl. 00:03

4 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Já, takk stelpur, þeir eru algjörar kisukrútturúsínudúllur sko.  Og það er búið að "panta" þrjá  

Svo er einn enn sem býr í kjallaranum. Ég veit ekki alveg hvort það er hann sem er ekki tilbúinn að fara að heiman eða hvort fólkið sem hann á er ekki tilbúið að láta hann fara.   Það er þessi dökkgrái kallaður "Engill" (Englabangsinn) sem sést á sumum myndunum í albúminu.

Ragnhildur Jónsdóttir, 27.1.2008 kl. 00:26

5 identicon

Ofsalega er ég fegin að heyra að þeir séu að fá heimili.  Ég hafði áhyggjur af því.  Þú hlýtur að vera í góðu jafnvægi núna samt, búin að vera í krúttkasti í tvo mánuði samfleytt!!

Hafðu það gott vinkona

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 02:59

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég væri alveg til í einn svona krúttuling

(málið er bara það að aðstöðuna skortir. )

Greta Björg Úlfsdóttir, 27.1.2008 kl. 13:17

7 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Þeir eru allir æðislegir, krúttboltar. Eigðu góðan dag, kær kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 28.1.2008 kl. 14:59

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nú er ég sko orðin fárveik af kisulöngun,  langar í fleiri en má ekki. Ég vona bara að þeir komist á góð heimili, þvílíkir gullmolar.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 17:34

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ hvað þeir eru fallegir. Ég er því miður með hann Brand, og þar með upp talið. En mikið vona ég að þeir fái allir góð heimili Ragnhildur mín.  Og takk fyrir að deila þessum yndislegu myndum af gullmolunum þínum með okkur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2008 kl. 21:10

10 identicon

Ertu að hugsa um að gefa kettlingana? Hvar ertu á landinu? Við erum að spá hvort við ættum að fá okkur einn.

Kv.

Sif

Sif (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 15:53

11 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Sæl Sif,  ég á einn kettling eftir, það er fress sá aftari á myndinni af bræðrunum. Hann er algjört krútt (náttúrulega) og mikill hundavinur  Ég bý í Hafnarfirði, netfangið mitt er ragjo@internet.is  þú getur sent mér mail ef þú vilt skoða kisa betur.

Ragnhildur Jónsdóttir, 6.2.2008 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband