Gleðilegt nýtt ár!

Gleðilegt ár!!!

Loksins tókst mér að tengja mig á lánstölvunni, það er enn verið að taka ákvörðun um gömlu tölvuna mína. Oh! hvað maður má þjást í tölvuleysinu...... Tounge er maður dekraður eða hvað haha Grin

Embla-Sól-og-kettlingarnir

Svo bilaði myndavélin líka! þannig að hún er á leið í viðgerð en ég náði þessari mynd af henni í tæka tíð. Ætli sé eitthvað að orkunni í mér, öll rafmagnstæki bila nálægt mér þessa dagana?

Okkur tókst nú samt að eiga dásamleg jól og yndislega frídaga á milli og síðan alveg frábær áramót líka! Ekki hægt að hafa það betra.

Ég óska ykkur öllum bloggvinir mínir og aðrir sem líta við; gleði- og gæfuríks nýs árs.

Knús og kveðjur og nú ætla ég sko að líta á síðurnar ykkar vinir mínir. Joyful

p.s. ef einhvern "vantar" krúttukettling og hefur góða aðstöðu til að halda kött, hafið þá bara samband, netfangið mitt er á bakvið myndina af höfundi ofar til vinstri og svo er líka hægt að skrifa í athugasemdir. Smile 

Þeir verða tilbúnir að flytja að heiman eftir ca mánuð en aðeins á góð heimili sko Wink

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Gleðilegt nýtt ár, Ragga mín, og takk fyrir það gamla. Gaman að heyra frá þér aftur, og myndin af litlu og kisunum er algjört æði.

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.1.2008 kl. 14:50

2 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Elsku Ragga, velkomin aftur, ég hef saknað fallegu myndanna og pistlanna hjá þér. Gleðilegt nýtt ár og takk kærlega fyrir yndislegar samverustundir og baráttu á ný liðnu ári. Verðum að fara að skella okkur í Fjöryrkjahitting fljótlega. Kettlingarnir og Sólin þín eru algjört krútt.  Bestu nýárskveðjur  Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 2.1.2008 kl. 16:49

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vá, þú veist ekki hvað ég saknaði þín. Gott að þú ert komin inn á ný.  Óska þér og þínum innilega gleðilegs árs og takk fyrir kynnin, vonandi eigum við eftir að hittast oft á þessu ári.  Nú verð ég bara að ná mér í högna á Bóthildi mína svo ég fái svona fallega kettlinga, ef þeir fæðast inn á heimilinu þá getur bóndinn ekki sagt nei.   Eyes   Kær kveðja til ykkar.

Ásdís Sigurðardóttir, 2.1.2008 kl. 18:19

4 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.

Kærleikskveðja í bæinn.

Júlíus Garðar Júlíusson, 2.1.2008 kl. 20:13

5 Smámynd: Linda litla

Gleðilegt árið Ragga mín og takk fyrir bloggsamskiptin á hinu gamla.

Linda litla, 3.1.2008 kl. 00:13

6 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Þakka ykkur öllum kærlega fyrir. Það er þvílíkur léttir að vera komin í samband, þó að tölvan mín sé ennþá í viðgerð. Virkilega gott að geta kíkt á síðurnar ykkar bloggvinir mínir og heilsað uppá ykkur.

Knús og kveðjur

Ragga 

Ragnhildur Jónsdóttir, 3.1.2008 kl. 18:26

7 identicon

Gleðilegt ár, og velkomin í bloggheima, þvílíkar dúllur sem kisurnar þínar eru, vonandi fást góð heimili fyrir sætukoppana þína 

Hófý (IP-tala skráð) 3.1.2008 kl. 23:09

8 identicon

Elsku Ragga mín!  Mikið er gott að sjá þig aftur!  Ég fékk svona spenning í magann þegar þú kommentaðir á síðuna hjá mér   "RAGGA KOMIN AFTUR"!!!  Þín hefur verið saknað og ég segi bara velkomin!  Sjáumst nú vonandi í fjöryrkjahittingi.

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 11:48

9 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Gleðilegt ár Ragga. Mikið eru kettlingarnir fallegir, ef ég væri ekki með tvær kisur, myndi ég sko alveg taka við einum, já, eða jafnvel tveimur. Vonandi tekst þér að finna góð heimili fyrir þá.

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 4.1.2008 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband