Lífið í vorinu

Dásemdar fegurðurdagur í dag. Sólin skín og tré og runnar brosa, fuglarnir syngja hljóðlega af hreiðrum sínum og náttúrverurnar vinna sín vorverk glaðar, raulandi hálfum hljóðum. Himininn svo fallega bjartur og loftið svo tært eftir veður undangenginna daga.

kirsuberjatre-5_-mai-09.jpg

Litla kirsuberjatréð mitt heldur mér í vonarspennu, skyldi það blómstra í ár eða eru þetta eingöngu lauf? Sideways

kirsuberjatre-5_-mai-09-nal.jpg

Hvort heldur sem er þá er mikill lífskraftur að verki í litla trénu mínu. Fagrir trjáálfar dansa og flögra, vinna og gleðjast yfir góðum vexti heimilis síns og lífgjafa. Ein könguló á heima í þessu tré, ég fylgist með henni vaxa, hún ætlar að sjá um óæskilega óværu sem hugsanlega hefur boðað komu sína. Samvinna, það er það sem verkar best Joyful

reynirinn-5_-mai-09.jpg

Það er hins vegar aldrei launungamál að stóri reynirinn minn blómstrar á bakvið hús. Þetta dásamlega fallega gamla tré stendur alltaf fyrir sínu, hver árstíð með sitt hlutverk og sína fegurð.

En það er fleira sem fylgir vorinu. Hún Vala mín .... hún er eitthvað orðin hrifin af "Blörraða gaurnum" aftur...

vala-bi_ur-blorra.jpg

Hér situr hún og hlustar, sá blörraði er hérna fyrir neðan svalirnar og "syngur" og annar stór, loðinn svartur og hvítur bíður við hornið. Já það eru tónleikar í lagi í hverfinu þessa dagana Wink

gly_ran-vala.jpg

Já Vala mín fagra litla glyðra, það verður fjör á heimilinu aftur og nýbúið ... Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislegar myndir. Kær kveðja til ykkar hjóna og ég vona að allt sé í góðum gír.  Kveðja 

Ásdís Sigurðardóttir, 6.5.2009 kl. 11:59

2 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Yndislegt að fylgjast með vorinu vakna  En úps, heldurðu að það verði aftur fjör á bænum?  

Knús knús, sjáumst í dag

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 7.5.2009 kl. 08:00

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eru þetta kúrileyjakirsuber Ragnhildur mín ?  Þú getur séð á knúppunum hvort þar er blóm að finna, knúppar blómanna eru hringlaga meðan blöðin eru aflöng. Mér sýnist nú vera blómknúppar þarna í klasanum.  En vorið er greinilega komið hjér þér mín kæra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.5.2009 kl. 10:16

4 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Jóhanna, já það er svo sannarlega yndislegt að fylgjast með vorinu lifna við

Ásdís, takk. Já já hér er allt í góðum gír, stundum skref aftur á bak eins og gengur en alltaf miklu fleiri áfram og þá er lífið í rétta átt bestu kveðjur til ykkar.

Sigrún, já vorið er svo yndislegt. Ég veit ekki hvernig ég þorði að segja þetta upphátt en ... já, ég er hrædd um að Völu hafi tekist að koma sér undan pillunni eina ferðina enn, svo við "neyðumst" til að hafa líf og fjör og gaman í sumar hahaha Sjáumst!

Ásthildur, á miðanum sem fylgdi stendur: "Sætkirsiber "Stella" og svo "Prunus avium "Stella". Þakka þér fyrir upplýsingarnar Ásthildur með knúppana og mér finnst ég kannast við þetta nafn Kúrileyjakirsuber, getur það haft fleiri en eitt nafn?  Og, já vorið er sko komið í "full swing"!

Ég safna rósarunnum og þeir eru allir komnir af stað, auðvitað mislangt eftir tegundum. Þetta er dásamlegur tími!

Ragnhildur Jónsdóttir, 7.5.2009 kl. 10:37

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Fallegar myndir og mikið er Magni Víkingakisi flottur hér á myndinni fyrir neðan.

Svava frá Strandbergi , 14.5.2009 kl. 01:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband