Samvinna

Hér á bæ eru tvær læður með kettlinga. Edda á einn kettling eftir og Vala þrjá. Þær eru svo dásamlega góðar systur og vinir að þær hjálpast að við uppeldið InLove

edda-og-kettlingarnir-i-duk.jpg

Edda í dúkkuvöggunni með sinn gráa Albus jr og tvo syni hennar Völu, Álf og Snjótígra Joyful Þessa gömlu dúkkuvöggu fékk ég í 9 ára afmælisgjöf, einhvern tíma á síðustu öld..... Tounge Hún er vinsæl af öllu ungviði hér á bæ enn þann dag í dag. 

embla-me_-albus-jr.jpg

Stundum þarf Embla Sól að hjálpa þeim ofan í vögguna svo þeir geti farið að lúlla Joyful

lullukrutt.jpg

Og það er greinilega gott að lúlla þarna í vöggunni innan um dúkku og bangsa InLove

albus-jr_-og-snjotigrinn-i-.jpg

Það þarf líka að læra á lífið og leika sér með þroskaleikföngin.. færa til og ...

albus-jr_-og-snjotigrinn-2.jpg

tosa aðeins upp og ýta til hliðar..... Wink

solin-sest.jpg

Dagur er að kveldi kominn, sólin sest og litlar kisur þurfa að leggja sig. Það þarf að safna kröftum fyrir ný ævintýri á morgun.

vala-me_-kettlingana-i-sofa_791516.jpg

Þvo sér um trýnið og sofa svo vært undir vökulum augum Völu mömmu og frænku. Það er hennar vakt í þetta sinn Joyful

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ó mæ god, ég er uppnumin yfir þessum fögru myndum.  Takk elskuleg.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.2.2009 kl. 21:15

2 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Hefur enginn "eigandi" skilað sér? Flottur leikur með þroskaleikföngin  Ég átti líka svipaða vöggu þarna á síðustu öld  alveg sígildar. Veit reyndar ekki hvað varð af minni. Æðisleg myndin af sólsetrinu!

Kisukrúttkveðja

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 10.2.2009 kl. 23:59

3 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Og auðvitað er Embla ofurkrúttið. Ég kannast við þessi handtök héðan

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 11.2.2009 kl. 00:02

4 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Ásdís takk, þau eru náttúrulega bara krútt sko

Sigrún, nei eigendurnir ekki búnir að finna okkur ennþá en ég hef ekki verið dugleg heldur, ekkert auglýst eða neitt. svo það er kannski ekki von.   Svona vöggur eru æðislegar, ég er alltaf á leiðinni að sauma á vöggusett handa ofurkrúttinu mínu en.... það er ýmislegt annað á undan í röðinni haha

Oh þessi handtök, já, kisukrúttin verða sko að vera vön svona krútthandbrögðum  

Ragnhildur Jónsdóttir, 11.2.2009 kl. 09:40

5 identicon

fallegir kettlingar:-), ég er einmitt að leita mér að kettling, endilega hafðu samband, 662-8812, er staddur á höfuðborgarsvæðinu.

Kveðja, Arnar

Arnar (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 17:51

6 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Já og Arnar hérna í kommentinu fyrir ofan fékk "Snjótígrann" með sér heim ég gat ekki betur séð en þeir hefðu fallið hvor fyrir öðrum um leið og þeir hittust.

Gangi ykkur sambúðin vel "strákar"

Ragnhildur Jónsdóttir, 13.2.2009 kl. 16:47

7 identicon

Sæl veriði, það gengur vel hjá mér og tígra, sem reyndar börnin ætla að nefna brand,tristan eða skrekk, læt þig vita hvað kemur útúr því hehehe. Hann malaði hinsvegar í fyrsta skipti hjá mér í kvöld, honum leiðist ekki dekrið;-) hehehehe og svo er víst komin kanína á heimilið líka, og það fer vel á þeim...allavega ennþá:) og svo er hann yfir sig hrifin af nýja húsinu sínu sem við keyptum í blómavali:-)

Kveðja úr grafarholtinu, Arnar,tristan og kata kanína

Arnar (IP-tala skráð) 13.2.2009 kl. 21:16

8 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Frábært að heyra þetta Arnar! Þakka þér innilega fyrir að leyfa mér að frétta. Kata kanína, það líst mér vel á, þau geta alveg orðið góðir félagar. Við vorum með kanínu "hérna um árið" og skjaldböku reyndar og það fór vel á með hundum, köttum og kanínu en skjaldbakan ... ja, hún var bara þarna hahaha

Takk Arnar, knús til Tristan frá kisumömmunum og mér   

Ragnhildur Jónsdóttir, 13.2.2009 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband