Prik dagsins, þriðjudags :-)

Prik dagsins ætla ég að tileinka yndislegri konu sem ég heimsótti í hádeginu í dag. Það var dásamleg heimsókn sem skilur mikið eftir sig í sálinni minni. Takk Erla Joyful

Ég fór í Melabúðina í fyrsta skipti á ævinni í dag. Þar var ung afgreiðslustúlka á kassanum sem var svo jákvæð og geislaði af sér gleði og hlýjum hug. Hún gaf mér bros sem ég fór með út og gaf áfram. Svona viðmót skiptir máli í daglegu lífi. Við ættum öll að muna að brosa og gefa af okkur jákvæðni. Það er smitandiSmile

Þessar tvær fá prik frá mér í dag.  takk fyrir migHeart

 Himneskt-bros

 Himininn brosir líka sínu himneska brosi. Stundum er skýjað og við sjáum það ekki en brosið er þarna, bara hulið í augnablikinu ...  Halo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gullfalleg myndin, ég gef huglæg prik i dag.  Knús til þín

Ásdís Sigurðardóttir, 6.5.2008 kl. 22:34

2 Smámynd: Lárus Vilhjálmsson

Svo auðvitað fær vorið sem er að koma í allri sinni dýrð eitt prik að misnnta kosti.

Lárus Vilhjálmsson, 7.5.2008 kl. 00:35

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Yndisleg mynd Ragnhildur mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.5.2008 kl. 00:38

4 identicon

Þú færð prik frá mér fyrir fallega mynd

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 14:56

5 Smámynd: Fiðrildi

 . . . ég tek brosið og þakka þér fyrir það.

Fiðrildi, 8.5.2008 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband