Takk Pollýanna

 HeartPollýanna mín, takk fyrir 15 yndisleg ár. Heart

Pollýanna-gamla

Nú geturðu hlaupið um græn engi í Paradísinni án veika skrokksins sem var farinn að trufla þig verulega. Við söknum þín mikið en vitum að þú verður með okkur áfram. Minningin um þig mun lifa um ókomin ár.

HeartTakk Pollýanna, takk.Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ elsku Ragnhildur mín, ég veit hvað það er sárt að missa fjölskyldumeðlim sem hefur verið svona lengi með manni.  Missti Lubba minn eftir 12 ára sambúð.  Það voru margir saknaðardagarnir á heimilinu okkar.  Ég vil votta þér innilega samúð mína og megi hún hvíla í friði blessunin.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2008 kl. 21:58

2 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Elsku Ragga mín, greinilega erfitt og sárt að missa fjölskyldumeðlim. Ég sendi þér og fjölskyldunni mína innilegustu samúðarkveðjur. Kær kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 27.3.2008 kl. 23:29

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Elsku Ásthildur mín þakka þér fyrir falleg orð
Takk elsku Ingunn mín. Já, það er margst að sakna eftir mörg góð ár saman. Huggunin er auðvitað að hún átti gott líf og langt. Og býr nú á góðum stað og hefur það gott án veika skrokksins síns og mun auðvitað líta til okkar.

Lífið og fjörið heldur áfram í yngri kynslóðinni á bænum Það var mjög sterkt að fylgjast með þeirri gömlu áður en hún kvaddi. Það var greinilegt að hún vissi alveg að hverju stefndi og var alveg tilbúin. Pollýanna kom einhverju til Dúfu litlu hvolpsins okkar, áður. Þær tvær áttu þögla innihaldsríka stund saman um morguninn. Ólýsanlegt en sterkt augnablik sem ég mun aldrei gleyma að hafa orðið vitni að. 

Svona er lífið magnað. Nú er það faðir minn sem gætir hennar Pollýönnu og hugsar vel um hana. Á betri stað er ekki hægt að fara. 

Ragnhildur Jónsdóttir, 28.3.2008 kl. 16:08

4 Smámynd: halkatla

fallega Pollýanna  ég samhryggist ykkur innilega

halkatla, 28.3.2008 kl. 16:13

5 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Þakka þér fyrir Anna Karen

Ragnhildur Jónsdóttir, 29.3.2008 kl. 11:45

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Æi hvað þetta er falleg kveðja Ragnhildur. Ég samhryggist ykkur vegna Pollýönnu.

Jóna Á. Gísladóttir, 29.3.2008 kl. 17:23

7 Smámynd: hofy sig

Það er alltaf erfitt að kveðja dýrin sín, en huggun harmi gegn þegar þau hafa lifað löngu og góðu lífi. Ég samhryggist ykkur. Kv.
Hófý Sig

hofy sig, 31.3.2008 kl. 19:31

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég samhryggist ykkur innilega.

Greta Björg Úlfsdóttir, 31.3.2008 kl. 22:09

9 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Jóna, Hófý og Greta, þakka ykkur innilega fyrir góðar kveðjur.

Ragnhildur Jónsdóttir, 31.3.2008 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband